Vikan


Vikan - 14.12.1999, Blaðsíða 2

Vikan - 14.12.1999, Blaðsíða 2
Allt frá bví að Hilmlr Snær Guðnason steig fyrst á svlð hefur hann att jstif- urlegum vinsældum að fagna. Nyut- skrifaður úr Leiklistarskola Islands sló hann í gegn i Hárinu, einni uin- sælustu leíksyningu selnni tima. Siðan hefjir hann unnið hvem leik- sigurinn a fætur oðrum. Undanfarnar vikur hefur Hilmir Snær reynt fyrir sér á nýium vettvangi. _______________ Hann tok að sér hlutuerk leiksljðra í Þióðleikhúsínul ií og situr einn úti í sal. Velgengnin hefur fylgt Hilmi Snæ í gegnum tíðina. Frá því að hann lauk leiklistar- námi hefur hann verið á samningi hjá Þjóðleikhúsinu. Síðastlið- inn vetur reyndi fyrst á leikstjórahæfi- leikana þegar hann tók að sér leik- stjórn Krákuhallarinnar hjá Nem- endaleikhúsinu. Þessa dagana á Gullna hliðið, leikrit Davíðs Stefánssonar, hug hans allan. Gullna hliðið er jólasýning Þjóðleikhússins í ár. Leikarahópurinn samanstendur af tólf úrvalsleikurum, reynslumiklum og nýútskrifuðum í bland. Nú hafa margir ungir leikarar reynt fyrir sér sem leikstjórar. Er það draum- ur allra leikara að taka að sér leik- stjórn? „Ég veit það nú ekki. Ég held að það sé öllum leikurum hollt að prófa það. Mig hafði alltaf langað að reyna fyrir mér í leikstjórn og svo var ég beð- inn að taka þetta stykki að mér." Hvernig gengur þér að stjórna hópnum? „Það hefur gengið vel til þessa. Reyndar er alltaf skrýtið að vera hinum megin við girðinguna. Ég er einn úti í sal á meðan leikararnir eru hópur á sviðinu." Þótt Hilmir Snær vermi leikstjórasætið í augnablikinu ætlar hann sér ekki að sitja þar lengi. „Ég held að ég bíði með áframhaldandi leik- stjórn. Þetta er orðið gott í bili." Að vanda hefur Hilmir Snær mörg járn í eldinum. Fyrir stuttu var kvikmyndin Myrkrahöfðinginn frumsýnd, þar sem hann leikur eitt aðal- hlutverkanna. Hann hefur leikið í mörgum kvikmyndum og kvikmyndahúsagestir munu sjá hann á hvíta tjald- inu í 101 Reykjavík og Englum alheimsins sem verða frumsýndar á næstunni. Langar þig ekki til að fara út í kvikmyndaleikstjórn? „Nei. Ég þekki allt of lítið til slíkrar leikstjórnunar. Hún heillar mig ekki á sama hátt." Nú horfa margir til útlanda í leit að nýjum atvinnutæki- færum. Hefur þú reynt fyrir þér erlendis? „Nei. Ég hef verið svo lánsamur að fá góð hlutverk og hef haft mikið að gera á íslandi. Ég hef ekkert reynt að komast í burtu. Ég myndi hins vegar ekki hafna slíku tækifæri ef það byðist. Það væri mjög gaman að fá eitt eða tvö verkefni erlendis, bara til að prófa eitt- hvað nýtt." Sé Hilmir Snær jafnfær í nýja hlut- verkinu og þeim fyrri ættu leikhúsgest- ir ekki að verða fyrir vonbrigðum með Gullna hliðið. 'j 2 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.