Vikan


Vikan - 14.12.1999, Blaðsíða 26

Vikan - 14.12.1999, Blaðsíða 26
Hrvllileg bíóferð g var nítján ára og yfir mig ást- fangin. Við höfðum svolítið gjó- að augunum hvort á annað og dansað saman nokkur kvöld þegar hann hringdi og bauð mér í bíó með sér. Á þeim árum var sú hjátrú viðloð- andi meðal vinkvenna minna að ekki mætti sýna karlmönnum of skýrt og greinilega að maður hrifist af þeim því veiðimannseðli þeirra þyldi það ekki. Þeir áttu að ganga á eftir kvenmannin- um með grasið í skónum í þó nokkurn tíma til að áhugi þeirra næði að vakna að fullu og slokknaði ekki aftur eins og lélegur logi á skari. Af þessari ástæðu var nauðsynlegt að sýna ákveðinn kulda í framkomu og vera örlítið fjar- læg og annars hugar þegar hann var nálægt. Eins og gefur að skilja var erfitt að standast freistinguna að gæla við og snerta sinn heittelskaða þegar maður var búinn að bíða dögum saman eftir að hann léti heyra frá sér. Ég var því fljót að stinga upp á því að við færum á hryllingsmynd sem sögur fóru af um bæinn. Fólk kvað nötra af ótta og kon- ur áttu til að kasta sér í fang hraustra sveina til að verjast því að verða yfir- kornnar af skelfingu. Ég hugsaði mér því gott til glóðarinnar að njóta þess að snerta kærastann án þess að hann gæti með góðu móti lagt það þannig út að ofurást mín á honum stjórnaði gerðum mínum. Myndin byrjaði vel, var bæði spenn- andi og áhugaverð en eitthvað skorti á hryllinginn. Atriði sem beinlínis vöktu með manni ofsahræðslu voru ákaflega fá. Loks kom þó að því að aðalkven- hetjan sem leikin var af Elisabet Taylor var á ferð um dimman, óhugn- Stútungskall, með þykkt og mikið yfir- varaskegg brosti flírulega til mín og vildi bjóða upp á kók. anlegan kjallara og áhorfendur vissu að morðingi var staddur einhvers stað- ar í næsta nágrenni við hana og gat birst hvenær sem er var út úr rnyrkr- inu. Spennan var nánast óbærileg og nú sá ég mér leik á borði. Ég skellti hönd á lærið á ástinni minni og kreisti þéttingsfast. Um leið og ég tók á manninum fann ég að efnið í buxunum var gróft flauel en elskan mín hafði klæðst gallabux- um. Ég kippti því höndinni eldsnöggt til baka en skaðinn var skeður. Ég leit til hliðar og uppgötvaði að kærastinn sat mér á hægri hönd en ég hafði gælt við manninn sem sat vinstra megin við mig. Ég gleymi aldrei vandræðagangin- um í sjálfri mér þegar ljósin voru kveikt í hlénu og stútungskall, með þykkt og mikið yfirvaraskegg brosti flírulega til mín og vildi bjóða upp á kók. Þrátt fyrir að kærastinn skemmti sér býsna vel yfir mistökum mínum hef- ur hann reynst endingargóður og ágætur, því við höfum verið gift í bráðurn tuttugu ár. Steina Neyðarlegasta é löT" enna! Senðli Okkur skemmtilega sögu úr lífi þínu, hún má vera 1 vélrituð síða, í léttum dúr og á að fjalla um eitthvert minnisstætt atvik þar sem þú lentir í vanda. Við munum birta skemmtilegustu sögurnar og þeir sem fá sögur sínar birtar hljóta verðlaun sem eru ekki af verri endanum; Sheaffer Prelude sjálf- blekung. Sheafferpennar eru gæðagripir (eins og sjá má hér annars staðar á síð- unni!) og Prelude línan er sú vin- sælasta um þessar mundir. Prelude sjálfblekungurinn er einmitt rétti penninn fyrir nútímafólk, hann er hannaður sem sjálf- blekungur og hægt er að draga upp í hann blek úr blek- byttu, en einnig má nota blek- fyllingu ef það hentar eigandan unr betur. Á Preludepennanum er stáloddur, húðaður með 23 karata gulli og hann er sérstaklega hannaður til að falla vel í hendi. Skrifaðu minninguna af neyðarieg- asta atviki lífs þíns og sendu okkur hana. Við birturn sögurnar undir dul- nefni ef óskað er. Heimilisfang Vik- unnar er: Vikan, Seljavegi 2,121 Reykjavík. Hver veit nema þú eignist merktan Sheaffer penna! smins Aðsend saga= Höfundurinn, Steina, fær sendan glæsilegan merktan Sheaffer penna frá Andvara. ATH!: Munið að láta fullt nafn og símanúmer fylgja. 26 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.