Vikan


Vikan - 14.12.1999, Síða 19

Vikan - 14.12.1999, Síða 19
VIÐ ENDA REGNBOGANS LEYNDARMÁLIÐ í KJALLARANUM rv a Í5 lo asy\OiVjO^ Vss Sagt er að við enda regnbogans sé falinn fjársjóður. í hugaVillu, skondinnar og skemmtilegrar, 9 ára stelpu, er fjársjóðurinn í lífi hennar fólginn í því að mömmu hennar batni og að hún geti keypt gjöf sem gleðji hana. Síðast en ekki síst langar hana til að eignast kanínu. Margt skemmtilegt drífur á dagaVillu og vina hennar en ekki eru öll uppátæki þeirra vel séð og spurningin er hvortVilla lendir á Óþekktarbarnaheimilinu eða hvort hún kemst að enda regnbogans án þess jafnvel að vita af því sjálf. Þetta er fjórða barnabókin sem Helga Möller sendir frá sér. Helga lifir sig á einstakan hátt inn í heim barnanna og það kemur vel fram í bókum hennar sem hafa hlotið afar góðar viðtökur, bæði gagnrýnenda og lesenda. Ólafur Pétursson myndskreytti bókina. Skemmtileg spennusaga um fimm krakka í Reykjavík. Heima hjá einum þeirra er dimmur og dularfullur kjallari sem hefur margt furðulegt að geyma, m.a. grímu sem á eftir að koma við sögu í lokaköflum bókarinnar þegar innbrotsþjófar ráðast inn í húsið og þjarma að krökkunum. En þegar illa horfir kemur heldur betur óvæntur bjargvættur til sögunnar. Fyrsta barnabók Steinunnar Hreinsdóttur, flugfreyju og magisters í norrænum bókmenntum, með myndskreytingum eftir Jóhönnu, tvíburasystur hennar. FRODI

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.