Vikan


Vikan - 14.12.1999, Síða 30

Vikan - 14.12.1999, Síða 30
Sti-inunii Helgadóttir er skapandi kona, Hún reknr fyr- irtækið Leir- krúsina og þar kennir lnin i'óiki að móta nutsania og persónulcga hluti iir Ícir. teinunn flutti til Svíþjóðar árið 1977 og bjó þar í 13 ár. Hún lærði leirlist við Há- skólann í Stokk- hólmi og kennslufræði í Lýðháskóla í borg- inni. Steinunn er einnig menntaður leikskólakenn- ari, vann sem leikskólastjóri en hafði leirlistina sem áhugamál. Hún segir að fyr- ir fjórum árum hafi áhuga- málið síðan orðið að atvinnu hennar þegar hún stofnaði Leirkrúsina. Þetta er því fjórði veturinn sem Stein- unn býður upp á námskeið í leirmótun og hjá henni vinna þrír aðrir kennarar. Námskeiðin eru bæði fyrir byrjendur og þá sem vilja bæta við þekkingu sína á þessu sviði, því af nógu er að taka. Einnig er hún með námskeið fyrir mynd- menntakennara og starfs- fólk leikskóla þar sem hún miðlar af ríkri þekkingu og starfsreynslu sinni. Þá er Sköpunarþörfin þarf að fá að njóta sín „Það eru nokkrir tugir nemenda sem eru hér í leir- mótunarnámi í vetur. Það er aukinn áhugi hjá fólki að læra leirmótun hér hjá mér. Eg móta ekki sköpunarstíl- inn heldur ýti undir og reyni að efla og styrkja hug- myndaflug og hæfni hvers og eins. A námskeiðum fyrir byrjendur kenni ég mótun- araðferðir sem hver og einn útfærir síðan á sinn hátt. Það eru engin mót notuð hér heldur aðeins handverkið og hugmyndaflugið," segir Steinunn brosandi. „Aðalatriðið er að fólk leyfi sköpunarþörfinni að njóta sín og því líði vel hérna við vinnu sína. Þetta er líka góð hvíld frá daglegu amstri. Hér hittist fólk og getur notið samvista við aðra sem eru að sækjast eftir því sama, að læra mjög gef- andi handverk. Fyrir marga er þetta nýtt efni, en afskap- lega gefandi og skemmtilegt. Það er líka góð tilfinning að hafa gert einhvern grip sem er alveg einstakur og vita að aðeins er til eitt eintak í heiminum og maður á hann sjálfur. Það er stór þáttur í upp- lifun fólks hér. í nútímaþjóðfélagi, þar sem nær allt í umhverfinu er til- búið og matreitt ofan í okkur, er mjög mikil- vægt að við sinnum okkar meðfæddu sköpunarþörf þegar hún knýr á dyrnar. Við erum fædd sem skap- andi verur og höfum öll mikla sköpunarhæfileika, það er bara að byrja.1' Karlmenn í minnihluta ¥ - = ö M Vikan einnig boðið upp á opið verkstæði, ætlað þeim sem lokið hafa námskeiðum og vilja nýta sér vinnuaðstöð- una á verkstæðinu. Mark- miðið að hennar sögn að hafa alla starfsemi, nám- skeiðin og kennsluna sem fjölbreyttasta svo þekkingin nýtist sem flestum. Lænt að leira

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.