Vikan - 14.12.1999, Page 53
Idamótaútlitið
16. desember
Nú eru í vændum árþúsundamót, einstæður viðburður. Vitað er að margir
munu fagna þessum tímamótum með veisluhöldum og hleypur verð slíkra
hátíðakvöldverða gjarnan á tugum þúsunda. Því má gera ráð fyrir að
margir hyggi á að taka sig sem best út við þetta tækifæri.
Þann 16. desember býður MATTHILDUR hlustendum sínum á galakvöld í
Súlnasal Hótel Sögu, til að taka forskot á sæluna og kæta augu, eyru og
önnur skynfæri með kynningu á aldamótaútlitinu með glæsilegum
tískusýningum og hár- og förðunarsýningu. Aðgangur er ókeypis og
gestir eiga kost á að kaupa kvöldverð á hóflegu verði.
Matreiðslumeistarar Hótel Sögu útbúa sérstakan rétt fyrir þennan viðburð.
Tískusýningin verður í tveim hlutum. Verslunin Lín og léreft ríður á vaðið með
náttföt og sloppa, og tískuvöruverslunin Basic, með skemmtilegan tískufatnað.
Anna Valdimarsdóttir, sálfræðingur verður með pistil, sem byggir á Bókinni
Legðu rækt við sjálfan þig.
Þá er galasýning, þar sem Eggert feldskeri sýnir sína unaðslegu loðfeldi, Flex
sýnir fatnað, fylgihluti og skart heimsþekktra hönnuða. Fótabúnaður
sýningarstúlknanna er ekki af verri endanum, skófatnaður frá Skæði og Mura
sokkabuxur frá Alexías.
Face of Scandinavia og hárgreiðslumeistarar Mojo láta gamminn geysa um
andlit og hár, og þau verða einnig með hár- og förðunarsýningu, en í millitíðinni
munu Sigga og Grétar í Stjórninni flytja lög af plötunni s> 2000
Sviðsmynd er í höndum Hlín blómahúss og Mosraf
Kynnir er Anna Björk Birgisdóttir
Sýningarstjóri er Dísa í World Class
Framkvæmdastjóri kvöldsins er Anna Gulla fatahönnuður
Húsið verður opnað kl. 19-30 og kvöldverður verður framreiddur kl. 20.
Beztítónllst