Vikan - 14.12.1999, Síða 57
um bæinn varðandi faðerni
mitt. Ég var sífellt að heyra
sérkennilegar athugasemdir
og spurningar frá sama fólk-
inu. Þær komu frá börnum
ríkasta mannsins í bænum og
komu alltaf upp þegar þau
voru dauðadrukkin. Ég spurði
eldri systur mínar hvort þær
hefðu heyrt þennan orðróm.
Þær viðurkenndu báðar að
hafa heyrt slúðursögur fyrir
mörgum árum þess efnis að ég
ætti ekki að vera dóttir föður
míns. Slíkt væri algjör fásinna
og þær ákváðu að láta þetta
sem vind um eyru þjóta. Þeir
sem hafa búið í smábæjum
vita hvers konar kjaftagangur
getur hvissast út af engu til-
efni. Engin okkar minntist á
þetta einu orði við mömmu.
Uppljóstrunin mikla
Þegar ég var rúmlega þrí-
tug, og foreldrar mínir orðnir
sjötugir, lést mamma skyndi-
lega úr hjartaáfalli. Sorgin var
mikil og pabbi átt erfitt enda
voru þau alla tíð mjög náin.
Fjöldi fólks mætti við jarðar-
förina en þar sá ég mann sem
ég bjóst alls ekki við sjá þarna,
kónginn sjálfan, eins og bæjar-
búar uppnefndu ríkasta mann
bæjarins. Ég vissi ekki til þess
að hann hefði þekkt mömmu
persónulega. Hann mætti í
erfidrykkjuna og reyndi sífellt
að ræða við mig einslega. I
hvert skipti sem hann ætlaði
að hefja mál sitt kom einhver
og truflaði okkur. Ég sá að
pabba leið ekki vel. Ég fór
heim með hann, ég óttaðist að
dagurinn hefði verið honum
ofviða. Ég fann að honum lá
eitthvað þungt á hjarta en
hann gat ekki sagt mér hvað
amaði að. Hann grét eins og
lítið barn og ég sat hjá honum
og huggaði hann fram eftir
kvöldi. Mér leið mjög illa þeg-
ar ég yfirgaf hann. Þegar ég
kom heim sagði maðurinn
minn að fullorðinn maður
hefði hringt og endilega viljað
hitta mig. Stuttu síðar hringdi
síminn og á hinum enda lín-
unnar var kóngur bæjarins,
sem við skulum kalla Jón.
Honum var mikið í mun að ég
kæmi heim til hans, hann
þyrfti að ræða við mig alvar-
legt mál. Ég var nýkomin úr
jarðarför móður minnar og
ekki í skapi til að ræða eitt-
hvert mál úti í bæ en forvitnin
rak mig af stað. Jón tók höfð-
inglega á móti mér og vísaði
mér á skrifstofuna sína. Hann
afsakaði ágengnina í erfi-
drykkjunni og vottaði mér
samúð sína enn og aftur. Hann
sagði mér að móðir mín hefði
verið mjög góð kona en ég
þyrfti að vita leyndarmál sem
alltof margir vissu en ekki ég.
Hjónaband foreldra minna
hefði staðið tæpt á tímabili og
móðir mín átti í ástarsam-
bandi við annan mann, þann
sem sat fyrir framan mig og
sagði mér þessa sögu. Sam-
bandið stóð í nokkra mánuði.
Bæði voru þau gift og áttu
börn og því voru mörg hjörtu
sem þau særðu með ástarævin-
týrinu. Um leið og móðir mín
komst að því að hún var ófrísk
tilkynnti hún Jóni að hún gæti
þetta ekki lengur. Hún vildi
frekar halda í hjónabandið en
að tvístra tveimur fjölskyld-
um. Pabbi minn hefði haft
grun um hliðarspor mömmu
en fyrirgaf henni þegar hún
kom grátandi til hans og sagði
honum frá barninu sem hún
bar undir belti. Mamma bað
Jón að láta sig í friði og sverja
að hann segði ekki neinum frá
því að hann væri raunveruleg-
ur faðir minn. Eiginkona Jóns
tók hliðarspori hans mun verr
en pabbi hliðarspori mömmu
og hún hafði sínar grunsemdir
um leið og það spurðist út að
mamma væri ófrísk. Hún
reyndi stöðugt að fá Jón til að
segja sannleikann um barnið
en hann þagði þunnu hljóði.
Hann lítur á mig sem
dóttur sína
Orðrómurinn, sem ég
heyrði út undan mér, var því
kominn frá eiginkonu hans og
börnunum. Konan hans var
látin en Jón vildi að ég vissi
sannleikann, að hann hefði
alltaf elskað mömmu mína og
í gegnum árin hefði hann
fylgst vandlega með mér.
Varla leið sú vika sem hann sá
mér ekki bregða fyrir. Hann
hafði margoft hringt til
mömmu og beðið hana að
segja mér sannleikann en hún
tók því illa. Fyrir stuttu hefði
hann gert erfðaskrá og þar var
mitt nafn skráð sem einn erf-
ingja hans. Ég sat bara stjörf
og tárin runnu niður kinnarn-
ar. Mér fannst þetta allt svo
óraunverulegt. Móðir mín
hafði lifað tvöföldu lífi, pabbi
var ekki raunverulegi faðir
minn og þessi maður var blóð-
faðir minn. Ég gat ekki meira.
Maðurinn minn skyldi ekki
hvað hafði gerst þegar ég kom
útgrátin með Jón mér við hlið.
Ég varð að sjálfsögðu að
hringja til systra minna og
segja þeim sannleikann um
okkar flókna fjölskyldumynst-
ur. Pabbi átti erfiðar stundir
þegar þetta mál kom upp á yf-
irborðið. Hann vildi hitta okk-
ur allar saman. Hann sagði
okkur að hann hefði alltaf
elskað mömmu og því fyrir-
gefið henni. Þau ákváðu að
hefja nýtt líf saman. Það tókst
og upp frá þessu voru þau
mjög hamingjusöm. Þetta litla
kríli, sem átti alls ekki að
verða til, varð þeim til mikillar
hamingju. Honum hafi alla tíð
þótt jafnvænt um mig og hinar
systur mínar.
Auðvitað varð okkur öllum
illa brugðið. Ég held að þögn
foreldra okkar í öll þessi ár
Eg ákvað að spyrja eltíri systur
mínar hvort pær hefðu heyrt
hennan orðróm. Þær viður-
kenndu báðar að hafa heyrt
slúðursögur fyrir mörgum
árum hess efnis að ég væri
ekki dóttir föður míns. Slíkt
væri algjör fásinna og hær
ákváðu að láta bessar sögur
sem vind um eyru hjóta.
hafði valdið mestu sárindun-
um. Feluleikur með faðerni á
ekki að líðast.
Pabbi er orðinn gamall
maður og vill öllum vel. Að
sjálfsögðu erum við ennþá
mjög náin enda er hann hinn
eini, sanni pabbi í mínum
huga. Ég hef lítið samband við
Jón. Hann er mikill sjúklingur
og hann hefur sagt mér að
hann vilji að ég erfi eignir
hans, hann líti á mig sem dótt-
ur sína. Ég get ómöglega litið
hann sömu augum. Maðurinn
er blóðfaðir minn, á því leikur
víst enginn vafi. Hann á niður-
stöður úr blóðprufum sem
staðfesta það. Börnin hans
hata mig enda eru þau alin
upp með dollaramerki í aug-
unum. Tilvera mín eyðileggur
allar fjárhagsáætlanir þeirra.
Ég veit það eitt að ég ólst upp
hjá besta pabba sem ég hugs-
anlega gat eignast en ég hefði
samt viljað vita sannleikann
um uppruna minn fýrr og
heyra hann af vörum móður
minnar.
Lesandi segir
Margréti V.
Helgadóttur
sögu sína
Vilt þj deila sögu þinni með
okkur? Er eitthvað sem hef-
ur haft mikil áhrif á þig, jafn-
vel breytt lífi þínu? Þér er
velkomið að skrifa eða
hringja til okkar. Við gætum
fyllstu nafnleyndar.
I it‘iiniIist.i 11 oí0 en Vikiin
- „Lífsri'j nslusaga", Svljar egiir 2,
121 Kejkjavík,
Ncjfang: vikan@frodi.is