Vikan - 14.12.1999, Page 62
Ekki missa af...
... mankaðinum í Havana.
Þessi markaður er í gömlu borg-
inni og hefur sinn sjarma eins og
allir erlendir markaðir. Þarna er
prúttað alveg brjálað og margan
mætan muninn má fá þar,- fyrir lít
ið! Það sem helst hrífur landann
eru listaverkin; útskornar styttur,
olíumálverk og útsaumaðir dúkar.
he||unum
d IVIcUal IZ.ao. Þar er gifurlegt flæmi
af hellum i landslaginu, en ferðamenn mega
skoða einn af þeim. í hellinum eru uppsprettur og
þeim fylgir sú trú að vatnið úr þeim geti haft góð
áhrif á ýmsa mannlega þætti.
... Vináles dalnum.
Nafnið er dregið af vínplöntum sem plantað
var þar fyrir löngu því þarna átti að rækta
vínvið, því var hins vegar breytt og nú eru
þetta stærstu tóbaksakar á Kúbu. í Vinales
dalnum, sem er í Pinar Del Rió héraðinu, er
gífurleg náttúrufegurö og sambærilegt lands-
lag er hvergi nema kannski í suður- Kína.
... mannbroddum
eða broddstaf
handa ömmu og
afa í hálkunni.
Það er ekkert grín fyrir eldri borgara að fóta
sig í hálku og ekki aftur tekið ef einhver
dettur illa. Þessi ágætu hjálpartæki geta
forðað fólki frá óþægindum og jafnvel þján-
ingum og ættu að vera til í forstofunni svo
hægt sé að grípa til þeirra þegar þörf er á
að bregða sér af bæ í hálku.
... þvíað mála fyrir jólin.
Það er ekki svo erfitt eða dýrt að
mála eitt herbergi fyrir jólin. Það má
jafnvel láta sér nægja einn vegg ef
maður er of blankur eöa tímabund-
inn fyrir stórframkvæmdir. Það er
ótrúlega upplífgandi að skipta um lit
i stofunni eða á ganginum og það
gerir kraftaverk fyrir sálina.
KUBU! Enn er
möguleiki að senda
inn svarseðlana 6 í
Aldamótaleiknum og
eiga möguleíka á
ókeypis ferð fyrir tvo
á pessa stórkostlegu
eyju í Karíbahafinu.
Dregið verður milli iól
og nýjárs og vinnings
hafinn verður látinn
vita fyrir aldamótín.