Vikan


Vikan - 04.01.2000, Blaðsíða 14

Vikan - 04.01.2000, Blaðsíða 14
jg&MKÍg: “'"ZÖÖU Suðurnes eru á uppleið og þar er mikil ónýtt orka. Annað gildir um Vestfirði, þaðan verður mikill fólksflótti og ekki veitir af hjálp þar til að gera lífið bærilegra því ekki verður hægt að treysta á fisk- vinnsluna þar lengur. Gott atvinnuástand Það flytja þó ekki allir til Reykjavíkur, sem betur fer. Fólksstraumur mun einnig liggja til Suðurnesja, Akra- ness og Borgarness. Það verður bjart yfir Borg- arnesi og mikill uppgangur þar og það sama má segja um Akranes. Atvinnuástand mun einnig verða gott í Hveragerði og á Selfossi og þrátt fyrir jarðskjálfta þar mun fólki þar líða vel. Akureyri þarf á einhverjum nýjungum að halda, þar ríkja mikil stífni og afturhald og vantar ferska vinda. Húsnæðisskortur Húsnæðisskortur mun verða áberandi á Suður- og Suðvesturlandi, en því valda meðal annars fólksflutningar til þessara staða. Hátt verð verður áfram á húsnæði á þessum stöðum. Félagslega kerfið gengur illa og þar eru ekki öll kurl komin til grafar. Það er mikil fátækt meðal skjólstæðinga þess og margir þeirra eru í miklum fjárhags- legum erfiðleikum. Ástandið í þessum málum mun verða talsvert í fréttum á næsta ári. Efnahagsmál Verðbólga Verðbólga eykst gífurlega á árinu og gæti farið allt upp í 7% sem er harla mikið. Mat- væli munu hækka í verði en það má meðal annars rekja til einokunar í verlsun. Einhver lífeyrissjóður mun komast í fréttir vegna óráðsíu og í kringum það verður mikið hneyksli. Sala á opinberum eignum mun selja mikið á árinu. Margt af því verður þó kannski aðeins undirbúið á þessu ári en endanlega geng- ið frá kaupunum seinna. Mér sýnist ríkisfjölmiðill verða seldur á árinu, trúlega verður það Rás 2 þótt ég geti ekki fullyrt það nú. Sérkennilegt hlutafélag verður sett á laggirnar á þessu ári og það verður ein- göngu ríkt fólk sem að því stendur. Þetta fyrirtæki verður byggt á svikum og prettum sem tengjast erlendum fjár- festum. Svik og prettir Ég vil vara fólk eindregið við alls kyns gylliboðum á þessu ári, það verður mikið um svikatilboð sem berast ís- lendingum frá erlendum fyrir- tækjum. íslendingar eru ríkir og fljótir að stökkva til þegar auðfengnir peningar eru í boði og reynt verður að slá ryki í augu fólks með alls kon- ar nýjum tækifærum sem ekki er fótur fyrir. Almennt verður efnahagur landsins nokkuð góður á þessu ári, en gengið verður samt fallvalt í peningamálum því hinir fátæku verða fátæk- ari og þeir ríku ríkari þrátt fyrir góðærið. Stjómmál Huldukona í formannssæti Margrét Frímannsdóttir mun ákveða sjálf að það sé Samfylkingunni fyrir bestu að hún verði ekki formaður hennar. Margrét er þó ekki farin út úr stjórnmálum. Önn- ur kona mun koma þar inn sem formaður Sam- fylkingarinnar, huldukona sem enn er ekki komin fram á sjónarsviðið þegar þetta er ritað. Það verður ekki Ingibjörg Sólrún, eins og margir hafa gert skóna fram að þessu. Það mun verða stormasamt í kringum Ingi- björgu Sólrúnu á næsta ári, en það bítur ekkert á hana. Hún stendur sterk sem fyrr. Vinstri grænir upp, Framsókn niður Vinstri grænir eru á uppleið og straumurinn liggur þang- að, bæði úr Framsókn og VINSTRIHREYFINGIN grænt framboð Samfylkingu. Það er ekki vegna Steingríms sem fólk sækir þangað, eins og stund- um heyrist sagt, heldur er hreyfingin einfaldlega komin Sölu á opinberum eignum verður haldið áfram og Reykja- víkur- borg til að vera og verður sterkt afl á næstu árum. Ég sé ekki betur en að nýr grasrótarflokkur sé í uppsigl- ingu, fræinu verður sáð á þessu ári, en fáni hans á eftir að standa lengi. Mikið verður um að vera í pólitík og það munu verða átök vegna Framsóknarflokks innan ríkisstjórnarinnar. Þar mun verða klofningur sem leiðir af stefnu í virkjunarmál- um og það má mikið vera ef einhverjir þingmenn Fram- sóknarflokksins fara ekki af þingi vegna þessa máls. Finni Ingólfssyni mun takast með heppni að sigla í gengum það sem á honum brýtur, en hann mun verða gagnrýndur heift- arlega fyrir klúður og það ekki bara í nánustu framtíð. Það brotnar mikið undan Fram- sókn á þessu ári; það koma upp einhver hneykslismál í flokknum og það virðist vera mikill klofningur þar í aðsigi. Virkjunarmál valda sundrungu Virkjunarmálin verða barin í gegn þrátt fyrir mikla and- stöðu, það mun ekki ganga þrautalaust fyrir sig og mikill slagur er í uppsiglingu vegna þeirra. Líklegt er að Norsk Hydro dragi sig út úr fram- kvæmdinni. Það er ekki víst að til þess komi þó á þessu ári, en þeir munu hóta því og Fljótsdalsvirkjun mun í raun kaffæra stjórnina og kljúfa hana. íslendingar eiga eftir að fara illa út úr þessu máli öllu og síðar verður litið á þetta sem mesta skandal aldarinn- ar. 14 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.