Vikan


Vikan - 04.01.2000, Blaðsíða 16

Vikan - 04.01.2000, Blaðsíða 16
I 0BC Nokkrir Islendingar Hilmir Snær mun vekja mikla athygli og hróður hans berast víða. Hann verður skínandi stjarna á þessu ári. Hann hefur of mikið að gera, það veður allt kolvitlaust hjá honum en hann mun hafa það af og koma vel út úr því. Platan hennar Selmu fer vel af stað, þetta er samt ekki platan sem kemur henni á kortið. Hún á eftir að verða heiðurs aðnjótandi en það verður samt ekki þessi plata sem á eftir að gera hana fræga. Þetta er ekki hennar frægðartími, hún mun vera upptekin af fjölskyldumálum á næstunni, þau standa henni nær. íslenskar stúlkur munu reyndar ná langt á árinu. Gus Gus gerði skyssu að missa stúlkuna frá sér og þeir verða að finna aðra ef þeir ætla að ná fyrri vinsældum Nafn Hafdísar Huldar kemur sterkt fram á þessu ári og hún á mikla framtíð fyrir sér. Land og synir lofa góðu en það verður skítamórall í kringum Skítamóral og þeir mega gæta sín á þessu ári. Þess má að lokum geta að margir frægir poppsöngvarar koma hingað á þessu ári,- flytja jafnvel hingað. Mannréttindi Samkynhneigðir í sókn Hommar og lesbíur verða mikið í fjölmiðlum á þessu ári og málflutningur þeirra verður sterkur. Þekkt persóna sem ekki hefur afhjúpað kyn- hneigð sína fyrr kemur fram á sjónarsviðið og á eftir að styrkja samtökin og málstað þeirra mikið. Mál vegna kynþáttafor- dóma sem tengist stjórnmál- um og breytingum á lögum kemur fram á árinu. Þetta mun a einhvern hátt tengjast innflutningi á fólki til landsins Tryggingamál Tryggingamál verða ofar- lega á baugi og það verður talsverð bót á kjörum elli- og örorkulífeyrisþega frá því sem áður var. Það verður ekki valtað yfir þá á sama hátt og verið hefur. Mann- réttindabót þeirra vekur fögnuð meðal þjóðar- innar. Tryggingastofnun verður í fréttum vegna þess að yfir- maður hennar, Karl Steinar Guðnason, hefur hlaðið upp verkefnum sem ekki hefur verið gengið frá. Tryggingafélögin lenda í ýmsum leiðindamálum á ár- inu og það verða átök á þessu sviði á þessu ári. Fólk virðist ósátt við skilmála og bótagreiðslur almennt, en þó er eins og eitt fé- lag, Tryggingamið- stöðin, taki ein- hverja aðra stefnu og rísi uppúr j| þessu. Heilsufar Sýkingar og óhefð- bundnar lækningaað- ferðir Mikið verður um salmon- ellusýkingar í ýmsum matvæl- um hérlendis á árinu og virð- ist varla mikið vera hægt að sporna við þessari óheilla- vænlegu þróun. Miklu fleiri sýkjast en fréttist af og það má segja að þar sjáist aðeins toppurinn af ísjakanum. Það verða miklar breytingar á heilbrigðissviðinu á næsta ári. Það mun losna um alls konar höft, m.a. á innflutningi til grasalækninga. Ýmsar | náttúruafurðir sem munu * hjálpa sjúklingum hér verða fluttar inn. Tannlæknar styrkjast Tannlæknar verða mjög sýnilegir á árinu, það kann að verða verðstríð milli þeirra og breytingar á rekstri tann- læknastofa verða miklar. Tannlæknar munu fara að gera fólki tilboð og þeir munu auglýsa sig vel á næsta ári. í skólamálum Það er ekki bjart yfir skóla- málum hér, skólakerfið er í molum og metnaður lítill hjá yfirvöldum. Menntamál verða mikið í umræðunni og fólk mun í auknum mæli fara til út- landa til að afla sér menntun- ar. Skólamál verða í hreinasta ólestri og hroðalegt ástand sums staðar úti á landi; ríkis- valdið sýnir engan metnað fyrir hönd skólakerfisins þar. Mennta-og felagsmal Ömurleq staða 16 Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.