Vikan


Vikan - 04.01.2000, Blaðsíða 30

Vikan - 04.01.2000, Blaðsíða 30
Kynlíf á nýju árþúsundi OKKIIR VAR LOFflÐ ÞVIAÐ KYNUF 21. ALDARINNAR YRÐI... Handritahöfundar vís- indakvikmyndanna töldu okkur trú um að kynlíf framtíðar- innar yrði leikur einn. Líkam- legi þátturinn myndi heyra sögunni til; einnig afkáralegar stunurnar og krumpuð og samanvöðluð rúmfötin. Þess í stað kæmu snyrtilegar sam- farir sem færu fram með hugsanaflutningi og fjarskynj- unum, framandi hugbúnaði og fullnægingarpillum. Eftir ástaleik gætum við slappað af, malandi af vellíðan, án þess að ein einasta krumpa hefði myndast á silfurlituðum, níðþröngum samfestingnum. Því miður er þessi framtíð- arspá ekki í sjónmáli, ekki frekar en einkageimskutlan og sumarbústaðurinn á Mars. Gott og vel, við verðum að sætta okkur við þá staðreynd að enn er ekki búið að finna upp fullnægingarpilluna. En vísindamenn um allan heim hafa verið iðnir við það að rannsaka kynlíf kvenna. Tökum sem dæmi fullnæg- ingu kvenna. Guð veit að það tók mannkynið nógu langan tíma að uppgötva fyrirbærið. Og menn voru ekki fyrr búnir að því en þeir fóru að velta því fyrir sér hvaða tilgangi hún þjónaði. Auðvitað höfum við konurn- ar alltaf vitað það. Fullnæging er einfaldlega til þess að hjálpa okkur til að komast brosandi í gegnum lífið. Guð gaf okkur fullnæginguna sem sárabætur fyrir barnsfæðing- arnar. Fullnæging er eina ástæða þess að við nennum yfirhöfuð að standa í þessu. En vísindamennirnir Robin Baker og Mark Bellis eru á allt annarri skoðun. Þeir hafa nefnilega uppgötvað að full- næging kvenna sé ekkert annað en „uppsogun". Ekki mjög rómantísk nafngift, eða hvað? Þetta leiðindaorð nota þeir til þess að upplýsa okkur um það að fullnæging kvenna sé einfaldlega ekkert annað en aðferð líkamans til þess að framkalla nógu sterkan vöðvakrampa til þess að soga sæðið upp í legið. Án þessar- ar uppsogunar hefðu þessi litlu kvikindi enga möguleika á því að verða að börnum. Þetta getur verið ein ástæða þess að konur sem stunda framhjáhald eiga gjarnan á hættu að verða ófrískar eftir elskhugann. Því oftar sem þú færð fullnæg- ingu því betri möguleika eiga sæðisfrumurnar á því að hitta í mark. Ef þú gamnar þér utan heimavallar skaltu þess vegna gæta þess vel og vandlega að hafa getnaðar- varnirnar á hreinu. í tímaritinu New Scientist, upplýsa þeir Baker og Bellis einnig hvers vegna karlmenn stunda sjálfsfróun (eins og það hafi ekki alltaf verið á hreinu.) Vísindin segja að sæði sé til þess ætlað að við- halda mannkyninu; það sé alls ekki ætlast til þess að því sé sprautað yfir síður klám- blaðanna eða á bleiku bað- herbergisflísarnar. Og hvers vegna stunda karlmenn sjálfsfróun? Þessir ágætu vís- indamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að sjálfsfró- un sé karlmönnum nauðsyn- leg til þess að viðhalda sæð- isfrumunum. Ekki ólíkt því þegar við þrífum ísskápinn og hendum því sem komið er fram yfir síðasta söludag. Með sjálfsfróun er karlmaður- inn sem sagt aðeins að sinna skyldum sínum við náttúruna og taka til hjá sér. Við getum þegar þakkað vísindunum fyrir að lauma Vi- agra inn í líf okkar; litlu, bláu pillunni sem með mikilli reisn hefur endurreist margan nið- urdreginn karlinn. En þrátt fyr- ir fögur loforð um samsvar- andi kynlífssprengju fyrir kon- ur hefur ekkert gerst. En, eins og kynlífsfræðingurinn Dr. Martin Cole bendir á, þá er þetta aðeins spurning um tíma. „Eftir frábærar móttökur Viagra leikur ekki nokkur vafi á því að lyfjafyrirtækin eru reiðubúin til þess að verja stórum upphæðum til áfram- haldandi rannsókna. Viagra er aðeins fyrsta skrefið á leið visindanna til þess að blanda sér í lífefnafræði heilans í þeim tilgangi að bæta kynlíf- ið." Dr. Cole spáir því að kyn- ferðisleg örvun á nýrri öld verði ekki einungis efnafræði- leg. Hann gerir ráð fyrir því að fljótlega komi að því að ásta- leikurinn verði leikinn með að- stoð tölvu; þannig tölvur komi fljótlega á markaðinn. Hann segir uppblásnu brúðurnar brátt heyra sögunni til; í fram- tíðinni þurfir þú aðeins að eiga mús, hjálm og nokkra víra sem tengdir eru á rétta staði. „Ég hef heyrt að kynlífs- tölvur séu þegar til í Austur- löndum nær", segir Dr. Cole. „Það þarf ekki frjótt ímyndun- arafl til þess að sjá fyrir sér hvernig sjón- og skynfæri örvast með útbúnaði sem tengdur er kynfærunum. Það eina sem þú þarft að gera er að stinga tölvunni í samband og gæta þess að borga raf- magnsreikninginn á réttum tíma." Auðvitað er það talið „pervertalegt" að fagna nýrri öld með því að hafa samfarir með aðstoð tölvu. En að hafa samfarir í gegnum tölvuna er allt annað mál. Tony Horkins, dálkahöfund- ur tímaritsins New Woman, spáir því að vinsældir tölvu- samfara eigi eftir að aukast. „Þú ferð einfaldlega inn á eina af spjallrásunum á Inter- netinu og notar leyniorð til þess að gæta nafnleyndar. Ef þú færð áhuga á að kynnast einhverjum aðila beturfarið þið inn á einkarás. Ef þið náið vel saman er ekki ólíklegt að þið ákveðið að elskast í gegn- um tölvuna. Það fer yfirleitt fram þannig að þið lýsið um- hverfinu, hvernig þið eruð 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.