Vikan


Vikan - 04.01.2000, Side 56

Vikan - 04.01.2000, Side 56
Hverju svarar lœknirinn ? Þorsteinn Njálsson heiniilislæknir Það er mun betri kostur að fara með góða bók í rúmið en kaftibolla. Kæri læknir. Maðurinn minn sem er á fertugsaldri á við svolítið undarlegt vandamál að stríða. Hann hann er yfir- leitt rnjög hraustur og þetta vandamál tengist engum sjúkdómum, kvefi eða neinu slíku. Hann svitnar mjög mikið á nóttinni, stundum svo mikið að sængin, kodd- inn og lakið eru blaut af svita. Hann svitnar ekki svona á daginn, bara á nótt- inni meðan hann sefur. Er þetta merki um einhvers konar veikindi eða kannski bara fullkomlega eðlilegt? Er eitthvað hægt að gera við þessu? HVM Sæl HVM Þegar breytingar verða eins og þú nefnir mæli ég alltaf með því að fólk leiti til síns læknis og fari í skoðun og blóðrannsókn. Þegar jafnvægi líkamans raskast er alltaf ástæða til að skoða málið og fara yfir það. Setjum sem svo að hann væri búinn að fara í læknis- skoðun og blóðrannsókn og allt væri eðlilegt í þeirri deildinni þá væri hægt að skoða aðrar ástæður sem þarna gætu legið að baki og úrlausnir á þessum vanda. Það er ekki óalgengt að aðalástæða svona nætursvita sé streita. Ekki ólíkt og hjá börnunum. Þau detta og meiða sig eða verða mjög hrædd, sofna oft í kjölfar þess og svitna þá, þ.e. þau eru sem á floti. Með því að taka á streitunni, vinda ofan af henni og vinna úr henni er hægt að draga úr þessum einkennum. Skynsamlegt er að draga úr koffeinneyslu, t.d. kaffi- og gosdrykkjum. Út af fyrir sig getur þessi hæfileiki verið til góðs, því þarna er verið að losa um streitu, en það er hins vegar ekki þægilegt að svitna svona á nóttunni og því rétt að bregðast við með því að minnka álagið og leita leiða til að losa um streituna á annan hátt. En byrjið á því að fara í læknisskoðun og blóðrannsókn. Gangi ykkur vel, Þorsteinn Spurningar má senda til „tíverju svarar læknirinn?“ Vikan, Seljavegi 2, 101 Reykjavík. Farið er með öll bréf sem trúnaðarmál og þau birt undir dulnefni. Netfang: vikan@frodi.is Sá sem ekki veit og veit ekki að hann veit ekki, hann er kjáni. Forðastu hann. Sá sem ekki veit og veit að hann veit ekki, hann er barn. Kenndu honum Sá sem veit og veit ekki að hann veit, hann er sofandi. Vektu hann. Sá sem veit og veit að hann veit, hann er vitur. Fylgdu honum. Höfundurókunnur Þýðing: Jónína Leósdóttir 56 Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.