Vikan


Vikan - 18.01.2000, Page 47

Vikan - 18.01.2000, Page 47
Eftir Barböru Cartland. Þórunn Stefánsdóttir þjddi. og á morgun mun ég spyrj- ast fyrir hvort einhvers stað- ar sé að finna kot handa þeim. Ég verð einnig að finna vinnu handa mannin- um. Ég held að best sé að koma þeim fyrir í nótt í bakher- bergjunum í hesthúsinu þar sem hestasveinar gestanna eru vanir að sofa. Auðvitað! Það er góð hugmynd, sagði hertoginn. Meðan við bíðum eftir fólkinu skaltu biðja ráðskonuna um að finna til mat handa þeim og mjólk handa börnunum. Douglas flýtti sér inn og hertoginn sá að Yseulta brosti. Þetta er ennþá eitt ævintýrið, sagði hún blíð- lega. Hann brosti til hennar og sagði: Við skulum fara og líta á herbergin. Þau fóru að hesthúsinu sem var á bak við höllina. Yfir- hestasveinninn flýtti sér á móti hertoganum. Hertog- inn sagði honum erindið og hestasveinninn sýndi þeim herbergin tvö sem stóðu auð. Þar var einnig lítið eld- hús með furuborði, nokkrum stólum og litlum kolaofni. Flýttu þér að kveikja upp í ofninum, skipaði hertoginn. Skal gert, herra minn, svar- aði yfirhestasveinninn. Yseulta kom auga á stórt rúm, þakið hestaábreiðum, í einu horninu. Drengirnir geta sofið þarna, sagði hún. Já, auðvitað, sagði hertog- inn. Við verðum líka að finna til teppi. Það eru teppi hérna í skápn- um, herra minn, sagði yfir- hestasveinninn. Hann opnaði skáp og Yseulta sá að hann var full- ur af þykkum ullarteppum. Henni létti við að vita að konan og börnin yrðu ekki svöng og köld þessa nóttina. Svo sagði hún lágum rómi við hertogann: Ég er viss um að það er ljósmóðir í þorp- inu sem getur aðstoðað við fæðinguna. Já, auðvitað, þú hefur rétt fyrir þér, sagði hertoginn. Hann gaf skipun um að láta sækja ljósmóðurina og í því sáu þau fjölskylduna koma gangandi. Yseulta hafði á tilfinningunni að þau hefðu gengið hratt af hræðslu við að hertoginn skipti um skoðun eða gleymdi þeim. Konan var rauð í kinnum. Maðurinn hélt á yngri drengnum sem var of þreytt- ur og aðframkominn af hungri til þess að geta geng- ið. Hertoginn vísaði þeim á herbergin sem biðu þeirra. í því bili kom Douglas í fylgd tveggja þjóna. Þeir héldu á bökkum, fullum af mat, sem þeir létu frá sér á borðið. Drengirnir flýttu sér að krækja sér í brauð og rifu það í sig. Móðir þeirra ætl- aði að fara að ávíta þá en Yseulta sagði við hana: Sestu niður og hvíldu þig. Þú hlýtur að vera yfir þig þreytt. Hertoginn er búinn að senda eftir ljósmóðurinni og hún hlýtur að koma fljót- lega. Tárin runnu niður kinnar konunnar og hún þerraði þau jafnóðum óhreinni hendi. Yseulta gekk til her- togans og sagði: Ég held að það sé best að við förum og leyfum þeim að vera í friði. Þeim líður vel núna og þau eru allt of þreytt til þess að getað tjáð þakklæti sitt í orðum. Skv. síðustu fjölmiðlakönnun Gaiiup er Vikan nú 3. mest selda tímarit landsins. Hafðu samband við auglýsinga- stjorann okkar. Ingunn B. Sigurjónsdóttir Sími: 515-5628 GSM: 699-6282 Netfang: vikanaugl@frodi.is

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.