Vikan - 08.02.2000, Blaðsíða 26
Texti: Margrét V. Helgadóttir
Mynd: Sigurjón Ragnar
uðrún Agnes fékk syk-
ursýki fyrir tíu árum. í
fyrstu þurfti hún ein-
ungis að taka inn töflur
en fyrir um það bil ári
síðan þurfti hún að byrja að sprauta sig
fjórum sinnum á dag. Fyrst eftir
sprautumeðferðina átti hún í miklum
vanda með að finna rétta stjórnun á
blóðsykrinum með insúlínsprautunum.
Hún var sífellt að fá sykurfall, var oft
dösuð og úthaldslítil.
Guðrún Agnes fékk áhuga á golfi og
fór á námskeið fyrir byrjendur, sem
gekk mjög vel þar til hún fór að spila á
vellinum. En þegar komið var að 3. til
4. holu fékk hún alltaf sykurfall og
þegar 9 holur voru búnar var úthaldið
lítið og þreytan farin að segja til sín
eftir sykurfallið.
A þessu tímabili kom starfsmaður
frá Leppin Sport að kynna drykk sem
enginn sykur var í og vaknaði þá áhugi
hennar á hvort loksins væri kominn
drykkur sem sykursjúkir gætu notað.
Guðrún Agnes hafði alltaf verið á móti
sambærilegum drykkjum vegna of
mikils sykurmagns og annarra efna
sem sykursjúkir verða að forðast en
ákvað að slá til og prófa Leppin Sport
því í drykknum er enginn sykur, rot-
varnarefni eða koffein. Um leið og
Guðrún fór að nota Leppin Sport fann
hún mikinn mun á líðan sinni.
„Ég var mjög efins um ágæti Leppin
Sport til að byrja með en ákvað að
gefa því eina viku. Ég fann strax mik-
inn mun. Eftir vikuna gat ég farið að
spila 18 holur án þess að finna fyrir yf-
irþyrmandi þreytu eða þurfa að hvíla
mig lengi á eftir.
Ég er mjög meðvituð um líðan mína
í dag vegna sykursýkinnar og fann því
fljótt hversu vel mér leið. Ég fann fljót-
lega hversu mikið magn af Leppin
Sport ég þurfti að nota dags daglega og
það besta er að blóðsykurinn hjá mér
helst stöðugur núna. Ég þarf minna
insúlín og ég hef betri stjórn á sykur-
sýkinni, enda fæ ég ekki lengur sykur-
föll sem geta verið hættuleg.
Eftir að ég kynntist Leppin Sport,
get ég sagt að mér séu allir vegir færir.
Ég hef engar áhyggjur á meðan ég hef
drykkinn með mér. Þegar fjölskyldan
mín sá breytinguna á úthaldi mínu og
orku, fór hún ásamt stórum hópi vina
og kunningja að nota Leppin Sport.
Það er varla hægt að lýsa því að hve
miklu leyti líf okkar hefur breyst mikið
til batnaðar. Okkur líður svo margfalt
betur, ég hef úthald og orku og get
haldið áfram að stunda áhugamálin
mín þrátt fyrir að vera haldin þessum
sjúkdómi.“
26 Vikan