Vikan


Vikan - 08.02.2000, Qupperneq 48

Vikan - 08.02.2000, Qupperneq 48
Texti: Steingerdur Steinarsdóttir Merkisdagar á mannsæuinni eru margir og flestir eíga góðar minningar frá brúð- kaupum, merkisafmælum og fæðingar- dögum barna sinna. En til eru önnur merk tímamót sem sjaldan er haldið upp á og ekki margir þekkja aðrir en þeir sem líta til baka og minnast þeirra með hlýju. Hér er átt við persónulega sigra sem hver og einn uinnur á sinn hátt. í lífi einnar konu urðu slík tímamót þegar henni hafði tek- ist að hæna að reykja og hún vaknaði dag nokkurn til vitundar um það að tó- bakslöngunin plagaði hana ekki lengur. „Ég var margbúin aö reyna aö hætta en féll alltaf aftur,“ segir hún. „Einhvern veginn var ég innst inni farin að trúa því aö mér tækist aldrei að yfirvinna fíknina og þetta tæplega hálfa ár sem leið áöur en ég fann að fíknin var farin aö losa tökin var mér mjög erfitt. Þaö sem helst reyndist slá á löngunina í sígarettu var aö fara í sturtu eða bursta tennurnar svo ég var með hvítustu tennur sem um getur og alltaf tandurhrein meðan þaö versta var aö ganga yfir. Ég var ákveðin í aö hætta svo ég tilkynnti vin- um og vandamönnum hvaö til stæði með nokk- urra vikna fyrirvara í staö þess aö þegja og halda þessari ákvöröun fyrir mig. Þaö var ætlað sem aðhald fyrir mig líka því auðvitað er alltaf verra aö þurfa að viðurkenna aö manni hafi mistekist. Vinkona mín fór á námskeið hjá Krabbameinsfé- laginu og þar var henni kennt að búa til reyklaus svæði og draga úr reykingunum áður en hún a ð m i n n a s t hætti alveg. Ég ákvað að nota mér þessi þjóðráð og síðustu dagana áður en ég drap í síðustu sígarettunni hafði ég sígarettupakkann í póst- kassanum og varð að hlaupa niður af fjórðu hæð og reykja í forstofunni. Það voru því orðnar þrjár sígarettur sem ég reykti yfir daginn, enda nennti ég hvorki né gat haft svo mikið fyrir fleiri rettum. Fyrstu dagarnir voru stanslaus barátta við sjálfa mig. Ég nagaði gulrætur, velti blýanti milli fingranna og át sælgæti. Ég þyngdist um sex kíló á tveimur mánuðum en ekkert gat stöðvað mig. Kílóin mátti takast á við seinna þegar reykinga- bindindið væri orðið varanlegra og ég sterkari á svellinu. Þennan dag, rétt rúmlega fimm mánuð- um eftir að ég hætti, vaknaði ég óvenjuglöð í bragði. Ég fann að eitthvað var öðruvísi en áður en áttaði mig lengi vel ekki á hvað það var. Persónulegur hátíðisdagur Ég mætti í vinnu og glettist við samstarfsfólk mitt og í hádeginu fór ég út að ganga en það var eitt af því sem ég hafði vanið mig á til að auð- velda mér að vera án tóbaksins. Margir vinnufé- lagar mínir reyktu og reykingar voru leyfðar á kaffistofunni þannig að þó nokkrar líkur voru á að ég félli í freistni innan um þá. Ég gekk framhjá blómabúð sem er í nágrenni við vinnustað minn og ákvað að fara þar inn og skoða. Þegar ég gekk inn um dyrnar fann ég skyndilega yndisleg- an blómailm leggja á móti mér og ég áttaði mig á að lyktarskyn mitt hafði verið umtalsvert minna meðan ég reykti heldur en nú. Auk þess laust því allt í einu niður í huga minn að undanfarna daga hafði ég alls ekki leitt hugann að sígarettum né fundið fyrir neinni nikótínlöngun. Erfitt er að lýsa til fullnustu þeirri tilfinningu sem þá greip mig. Mér fannst ég hafa unnið stór- kostlegan sigur. Ég var svo glöð og stolt af sjálfri mér og ég man að ég hugsaði með mér að fyrst ég gat þetta gæti ég allt. í langan tíma eftir þetta fylgdi mér sú vissa að ég hefði náð góðum ár- angri og sigurtilfinningin náði tökum á mér í hvert sinn sem ég hugsaði til þess. Þetta var ómetanlegt í hversdagslífinu því í hvert sinn sem mér fannst eitthvað erfitt eða of mikil fyrirhöfn til að leggja á sig kom mér í hug að varla væri það mikið í samanburði við það að þurfa að neita sér um tóbakið sem ég hafði verið svo háð í mörg ár.“ Síðan þetta var eru liðin tólf ár en þessi kona heldur samt alltaf upp á daginn sem hún losnaði við tóbakið. í hennar huga eru þetta merk tíma- mót á lífsleiðinni og hún notar enn minninguna um þau til að fleyta sér yfir ýmsa erfiðleika. Flestir eiga sér sennilega svipaðar minningar og sjaldnast er um einhverja stóratburði að ræða. Sigur einstaklingsins á eigin veikleikum er samt nóg til þess að byggja upp sjálfstraust og draga úr óöryggi og kvíða. Hræðslan við að mistakast er nefnilega stundum meiri áhrifavaldur en mann grunar og að sigrast á henni er oft fyrsta skrefið til árangurs. 48 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.