Vikan - 08.02.2000, Page 54
Hann er subbulegur
vandinn á milli
ykkar stafi af
þessu? Getur ekki
verið að það sé eitt-
hvað annað að ergja
þig og þú fáir útrás í að
ergja þig yfir því hvern-
ig maðurinn þinn hegð-
ar sér inni á heimil-
inu? Ég á bágt með
að trúa að maður-
Kæri Póstur,
Ég er farin að hafa
áhyggjur af sambandi mínu
og mannsins míns og því
miður er ég hrædd um að
það sé mér að kenna að eitt-
hvað er að bresta.
Við erum búin að vera gift
í nærri fimm ár og eigum
tveggja ára barn. Ég hreifst
meðal annars af manninum
mínum vegna þess að hann
var svo frjálslegur, ófeiminn
og skemmtilegur, en nú er
viss hluti af þessum per-
sónuleikaeinkennum farinn
að fara óskaplega í taugarn-
ar á mér.
Mér finnst hann ekki bera
nokkra virðingu fyrir mér
lengur og vera alveg sama
um mig og hvað mér finnst.
Þetta kemur helst fram í því
að hann er hættur að nenna
að vera huggulegur til fara í
návist minni. Mér finnst
hann farinn að verða subbu-
legur þegar við erum ein. Ef
við erum heima við nennir
hann varla að klæða sig al-
mennilega, er stundum bara
á joggingbuxum einum fata,
órakaður og ber að ofan.
Hann er að vísu alltaf
hreinn. Svo er hann er alveg
ófeiminn við að leysa vind
þótt ég sé nálægt og hann
hlær bara ef ég verð reið yfir
því. Ég þoli heldur ekki þeg-
ar hann sest inn í sofu og
setur fæturna upp á borð
meðan hann er að lesa. Er
ég eitthvað skrýtin? A ég
bara að sætta mig við þetta,
eða hvað? Ég er ekki viss
um að ég geti það.
s.o.s.
54 Vikan
Kæra S.O.S. / '
Nú er erfitt að I
svara. Fólk er svo
ólíkt og gerir svo I
misjafnar kröfur í l f
einkalífi sínu.
Sumum finnst þú eflaust
einum of vandfýsin, öðrum
að þú hafir fullkom- w J
lega rétt fyrir þér. ^Wl
Sumum konum r-
finnst karlinn þeirra
sætastur og bestur þegar
hann er heima, frjálslegur í
fasi og jafnvel léttklæddur.
Aðrar konur vilja helst ekki
þurfa að horfa upp á
nokkurn mann hálfklæddan
og ótilhafðan og það gildir
jafnt um eiginmanninn sem
aðra. Það er líka matsatriði
hvort hreinn maður sé
subbulegur þótt hann sé fá-
klæddur og jafnvel órakaður
inni á sínu eigin heimili.
Sumum karlmönnum leiðist
að raka sig á hverjum degi,
mörgum finnst það jafnvel
vont og skeggbrodda er
varla hægt að flokka undir
óþrif þótt sumum konum
finnist þeir svolítið rónalegir
meðan öðrum konum finnst
þeir bara“sexí“.
Það er í raun þitt eigið
mat sem skiptir máli, ekki
annarra og það er líka þitt
að velja hvort þú vilt vera
með þessum manni áfram
og sættast við alla þætti per-
sónuleika hans eða ekki.
Það er mjög sennilegt að
þið eigið bæði erfitt í þessu
sambandi fyrst þið hafið
svona ólíkar skoðanir á því
hvernig heimilislífið á að
vera. En ertu viss um að
inn geri þetta ein-
ungis til að storka þér, hann
er eflaust frjálslegur að eðl-
isfari og líður einfaldlega
best þegar hann getur slak-
að á heima og verið hann
sjálfur. Hefurðu prófað að-
ferðina sem virkar mjög vel
á suma karlmenn - þ.e.a.s.
að hæla honum rosalega
þegar hann er fínn og hvetja
hann til dáða. Það gefur
góða raun hjá mörgum. Hef-
urðu reynt að segja honum
hvernig þér líður þegar hann
hagar sér svona (ekki með
rifrildistón og skömmum,
heldur bara útskýringum)
og spyrja hann hvort hann
vilji gera eitthvað til að
koma í veg fyrir þessa van-
líðan þína.
Ég vona að þið getið
fundið réttu leiðina til að
leysa þennan vanda. Mundu
bara að þetta er þitt líf og
þú verður sjálf að finna út úr
því hverju þú vilt fórna til að
halda hjónabandi þínu í lagi.
Spurningar má
senda til „Kæri
Póstur“ Vikan,
Seljavegi 2, 101
Reykjavík. Farið er
með öll bréf sem
trúnaðarmál og
þau birt undir
dulnefni.
etfang: vikan
©frodi.is
num pegar:
Þú átt lifandi pottaplöntur.
Þér finnst fáránlegt að gera það
í einbreiðu rúmi.
Það er meira af mat en bjór í
ísskápnum.
Klukkan sex er fótaferðatími
en ekki háttatími.
Þú gengur stundum með
regnhlíf.
Þú horfir á veðurfregnir í
sjónvarpinu.
Vinir þínir giftast og skilja í stað
þess að byrja og hætta saman.
Gallabuxur og bolur eru ekki
lengur „spariföt".
Það ert þú sem hringir í lögregl-
una út af partíi nágrannans.
Bílatryggingar lækka, bílaaf-
borganir hækka.
Hundurinn þinn fær hundamat,
ekki hamborgara.
Þú sefur ekki lengur á sófa
kunningjanna eftir partí.
Þú færð þér ekki lengur blund
frá hádegi fram að kvöldmat.
Þú ferð í lyfjaverslun eftir
brjóstsviðatöfIum og gyllinæð-
arkremi í staðinn fyrir að kaupa
smokka og þungunarpróf.
Tveir lítrar af rauðvíni eru ekki
lengur „eðalvín" að þínu mati.
Það er fleira en 1944- réttir,
bland, snakk og ídýfur á inn-
kaupalistanum þínum.
Þú segir: „Ég bara þoli ekki að
drekka eins mikið og ég gerði“
i staðinn fyrir „Ég ætla aldrei að
drekka aftur.“
90% af tíma þínum fyrir framan
tölvu fer í vinnu.
Þú drekkur ekki heima til að
spara pening áöur en þú ferð
á bar.
Barnið þitt fær
hláturskast þeg
ar það heyrir
uppáhaldslagið
þitt.
Það er orðið of
langt siðan þú
útskrifaðist úr
Háskólanum
þegar þú færð
reiðikast i
mátunar-
klefanum.