Vikan - 08.02.2000, Page 61
VINKONA Á VEFNIIM
Jennifer Aniston situr ekki auðum höndum þegar hún er ekki aö leika í Vinum
(Friends). Hún hefur gert samning um að gera frumlega þáttaröð sem send
verður út á Internetinu og ætluð er táningsstúlkum. Alls verða þættirnir 13 og sá
fyrsti verður settur á netið í vor. Aniston segir að þessir nýju þættir verði
skemmtilegir þar sem talaö sé í hreinskilni við táningsstúlkur. Þær stúlkur sem
hafa áhuga á að fylgjast með þessu vefævintýri leikkonunnar geta heimsótt
heimasíðuna en slóðin er www.voxxy.com. Aniston er einnig að reyna fyrir sér
sem framleiðandi sjónvarpsþátta. Hún er að vinna að þáttum sem munu fjalla
um opinskáan föður sem flytur inn til samkynhneigðs sonar síns. Pabbi leikkon-
unnar, John Aniston, mun leika aðalhlutverkið ef af því verður.
m
5í*rír4'?-
Leikkonan Mia Farrow
verður 55 ára hinn 9. febr-
úar. Hún hefur verið mikið í
sviðsljósinu undanfarin ár
en oftast er það vegna
deilu hennar og fyrrverandi
eiginmanns hennar,
WoodysAllen. I\lú eru það
hins vegar ánægjulegri
fréttir sem berast af
leikkonunni. Sonur hennar,
Seamus Farrow, þykir vera
eitt mesta undrabarn sem
stigið hefur inn í skóla i
Connecticut. Seamus er 11
ára og er þegar byrjaður í
háskóla. Hann er nemandi i
Simon's Rock háskólanum
sem er lítill skóli ætlaður
ungum undrabörnum.
Seamus er yngsti nemandi
skólans og hefur numið
bæðí líffræði og latínu í vet-
ur. Strákurinn hefur þegar
sótt um inngöngu í hinn
virta Columbia-háskóla og
vonast eftir að hefja fullt
nám við skólann næsta
haust. Þess má geta að
Seamus hét upphaflega
Satchel en Mia lét breyta
nafninu eftir að hún skildi
við Woody. Strákurinn hefur
ekki talað við pabba sinn í
fjögur ár og vill ekki hitta
hann. „Honum finnst
Woody ekki vera pabbi sinn
og lítur fremur á hann sem
manninn sem á í ástar-
sambandi við systur hans,
Soon-Yi,“ segir lögfræðing-
ur Farrow-fjölskyldunnar.
Leikarinn Nick Nolte er enginn engill. Nú er fyrr-
verandi eiginkona hans, Sharyn Haddad, að skrifa
bók um kauða þar sem ekkert er dregið undan.
Þau voru gift í 6 ár, frá 1978 til 1984, en hún seg-
ist hafa komist að því eftir að hafa séð frétt um
það í skemmtiþættinum Entertainment Tonight,
að hann ætlaði að skilja við hana. Sharyn er fyrr-
um dansari og hún segir að Nolte hafi verið mjög
villtur. „Við gátum ekki hamið okkur. Þetta var
erfið en æðisleg ást,“ segir Sharyn. Einu sinni
lenti þeim saman í rómantísku sólarfríi og hún
hélt ein heim á leið. Skömmu síðar hringdi hann
og var mjög veiklulegur. Hún heyrði undarleg
hljóð í bakgrunninum og spurðist fyrir um hvað
væri á seiði. Nolte var þá að láta galdralækni
krukka í sig. Sharyn hefur nú skrifað 30 síðna
uppkast sem hún er að bjóða bókaútgefendum í
New York og hún lofar villtum kynlífslýsingum,
sukksögum og að segja frá stormasömu sam-
bandi Nolte og Barbru Streisand á meðan á tök-
um á myndinni The Prince of Tides stóð. „Þetta
verður rosaleg bók,“ segir umboðsmaður hennar.
„Sharyn er athyglisverð kona sem hefur frá ýmsu
að segja." Nolte er ekki andvaka yfir sögum sinn-
ar fyrrverandi. Hann hefur sagt svæsnar sögur af
sjálfum sér í viðtölum og virðist bara stolltur af
skuggalegri fortíð sinni.
SÁRNAÐISLÚÐRM
Leikkonan Laura Dern ætlar að gifta sig áður en
langt um líður. Hún segist hafa fundið hina einu
sönnu ást með leikaranum Billy Bob Thornton sem
fékk óskarsverðlaun fyrir handritið að myndinni
Sling Blade fyrir tveimur árum. „Hjónabandið er
innan seilingar. Við hlökkum til að taka það skref
þegar við erum tilbúin," segir Dern sem féll fyrir
Thornton eftir að þau léku saman í sjónvarpsþætt-
inum Ellen. Dern segist hafa verið mjög sár þegar
hún heyrði sögur um að þau hafi verið byrjuð sam-
an áður en hann skildi við fjórðu eiginkonu sína.
„Fólk talaði um að við ættum í ástarsambandi þeg-
ar við höfðum bara hist einu sinni í partíi. Ég held
að ég hafi sagt að mér þætti myndin Sling Blade
góð en slúðurblöðin túlkuðu það sem: Elskan, ég
hitti þig í þílnurn!" Turtildúfurnar leika saman i nýj-
ustu mynd Thorntons, gamanmynd sem kallast
Daddy andThem.
VILLT ÁR MED NOLTE