Vikan


Vikan - 18.04.2000, Page 44

Vikan - 18.04.2000, Page 44
Gunnhildur Lily Magnúsdúiiir þýddi. HNEYKSLANLEGT BQNORB Sunnudagurinn byrjaði vel því sólin skein glatt og ekki sást ský á himni. Laura var komin út í bíl og lögð af stað út í buskann fyrir klukkan átta um morguninn. Hún hafði hugsað sér að koma sér vel fyrir á einni strönd- inni sunnan við Sidney. Það var að vísu of kalt til þess að svamla í sjón- um enda komið haust en hún gat vel hugsað sér að blunda í volgum sandinum og slappa af fram eftir degi. Hún geispaði við tilhugsun- ina enda hafði hún ekki sofið lengi síðastliðna nótt. Hún sofnaði fast um leið og hún kom á ströndina og lagðist í sandinn. Hún var útkeyrð á líkama og sál eftir álag síðustu vikna og svaf því fast allan morguninn. Eftir hádegi fór hún í göngu- ferð um ströndina og gekk fram og til baka eftir henni í langan tíma. Þegar hún settist loks niður helltust áhyggjurn- ar yfir hana. „Myndi Dirk gef- ast upp á að bíða eftir henni eða myndi þetta misheppnast hjá henni? Hann hafði aldrei gefist upp á neinu allt sitt líf. Það var honum að þakka að hún hafði fengið stöðuhækkun í vinnunni og það var honum að þakka að hún hafði lært að synda. Hann hafði ýtt henni áfram en þó alltaf með ástúð. Það hafði henni alla vega fundist þá. Núna velti hún því fyrir sér hvort Dirk hefði virkilega verið að hugsa um hennar hag þegar hann ýtti henni áfram eða kannski sinn eigin hag. Kannski hafði hann bara hjálpað henni að komast áfram í vinnunni vegna þess að hann gat ekki hugsað sér að eiginkona hans ynni bara sem afgreiðslustúlka í vöru- húsi. Slíkt hentaði ekki eig- inkonu frægs lögfræðings. Laura fól andlit sitt í hönd- um sér. „Ég verð að hætta að hugsa svona, annars verð ég brjáluð," sagði hún lágt við sjálfa sig og andvarpaði. Það skipti engu máli hversu góð- ur og umhyggjusamur Dirk hafði verið einu sinni, hann var gjörbreyttur maður nú. Það var sannleikurinn og það eina sem Laura gat treyst á. Það dró ský fyrir sólu um hálfsexleytið og golan varð kaldari. Laura neyddist til að yfirgefa ströndina en hún var samt ákveðin í því að fara ekki strax heim. Dirk myndi örugglega bíða hennar heima. Laura fann mikið fyrir því á þessari stundu að hún átti enga fjölskyldu og fáa vini sem hún gat heimsótt. Það hefði verið notalegt að fara í heimsókn til einhvers vin- gjarnlegs ættingja eða vinar, annarra en Morries og Car- melar, til að eyða tímanum. Allt í einu skaut vingjarnlegu andliti Hesterar upp í huga Lauru. „Ég veit ekki einu sinni hvar hún á heima,“ hugsaði Laura með sér þegar hún gekk að bílnum sínum. „Ég gæti nú svo sem flett henni upp í símaskránni. Það geta nú varla verið svo margar konur sem heita Hester App- leyards, jafnvel í jafnstórri borg og Sidney,“ hugsaði Laura með sér. En hafði hún ekki sagt að hún byggi með einhverjum manni? Þá myndi hún ekki vilja að ég truflaði hana loksins þegar hún á frí frá vinnunni. Ég verð bara að drepa tímann ein. Kannski get ég farið á McDonald’s og fengið mér að borða og farið svo í bíó. Eftir það ætti mér að vera óhætt að fara heim,“ hugsaði Laura með sér. Bíómyndin var alveg hörmuleg og Laura hefði gengið út í hléi ef hún hefði getað fundið sér eitthvað ann- að að gera. En hún hafði ekk- ert annað að gera og því sat hún og horfði á vitleysislega hryllingsmyndina sem engin glóra var í. Hún var pirruð yfir því að hafa eytt peningunum í svona lélega mynd en hún var samt ánægð þegar hún áttaði sig á því, að myndinni lokinni, að hún hafði ekkert hugsað um Dirk síðustu tvo tímana. En um leið og hún var kom- in út í bíl var hún aftur farin að hugsa um Dirk. Skyldi hann bíða ennþá eftir henni? Henni fannst það ósennilegt því klukkan var orðin hálftíu og yrði orðin meira en tíu þegar hún kæmi heim. Dirk var vanur að mæta snemma á skrifstofuna á mánudögum og fór því alltaf snemma að sofa á sunnudagskvöldum. Hann myndi ekki breyta út af venjunni nú. Eða hvað? Hann hafði reyndar breyst svo mikið síðan þau Laura skildu að hann gat vel hafa breytt þessari venju sinni líka. Hún hristi höfuðið hneyksluð og varð bitur er hún hugsaði um hversu mikið Dirk hafði breyst. Laura var komin heim rétt fyrir klukkan tíu. Gatan sem hún bjó við var þröng og því voru ekki næg bílastæði við hana. Samt sem áður urðu þeir sem ekki voru með bíl- skúra að leggja við götuna. Laura ákvað því að keyra nið- ur eftir allri götunni til þess að athuga hvort hún sæi nokk- uð bílinn hans Dirk, bláan Jaguar. Bílinn var ekki þar. Eini Jaguarinn sem hún sá í göt- unni var svartur. Hún and- varpaði fegin eftir þessa vett- vangskönnun sína og keyrði bílinn sinn inn í bílskúr. Kannski var hún enn taugatrekkt eftir myndina eða spennt vegna Dirks en hún áttaði sig á því þegar hún hafði lokaði útidyrunum á eftir sér að hún hafði haldið niðri í sér andanum alla leið- ina frá bílskúrnum. Hún setti keðjuna fyrir dyrnar og hló með sjálfri sér. „Kjáni er ég!“ sagði hún upphátt. Það var hrollur í henni og hún dreif sig inn á bað til þess að láta renna í baðkerið. Frá því að hún og Dirk skildu hafði hún alltaf farið í langt bað á sunnudagskvöldum til þess að róa taugarnar og tæma hugann. Reyndar hafði Laura kom- ið sér upp alls kyns venjum á kvöldin, eftir að Dirk fór, til þess að auðvelda sér að sofna. Stundum stundaði hún lík- amsrækt á kvöldin að kappi, stundum saumaði hún og stundum las hún áður en hún fór að sofa. Þó aldrei ástar- sögur. Þær myndi hún ekki lesa framar. Ef allar þessar aðferðir brygðust henni neyddist hún til þess að taka róandi lyf sem heimilislæknirinn hafði skrif- að upp á fyrir hana eftir að móðir hennar dó. Hún hafði reyndar, að eigin mati, verið orðin dálítið háð þeim á tíma- bili eftir að Dirk fór en það hafði breyst þegar Morrie bað hana að sjá um búning- 44 Vikan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.