Vikan - 23.05.2000, Page 20
Texti: Margrét V. Helgadóttir
Mynd: Gísli Egill Hrafnsson
Bannað að blota í brúðarkjól
Sólarhringurinn uirðist uera örlítið lengrí hjá Gerði Kristnýju en okkur hinum. Samhliða huí að ritstýra tímaritinu
Mannlífí uirðist hún alltaf hafa tíma til að sinna skáldskapnum. Hún hefur sent frá sér Ijóðabók, skáldsögu og
smásagnasafn og nú hefur fyrsta leíkritið hennar litið dagsins Ijós. Þetta er einleikur sem ber heitið Bannað að
blóta í brúðarkjól og uerður hann frumsýndur í Kaffileikhúsinu 1. júní nk.
Leikritið er einleikur
í gamansömum tón
þar sem nýgift brúð-
ur deilir hugrenn-
ingum sínum um hjónaband-
ið, ástina og framtíðina með
áhorfendum. Nanna Kristín
Magnúsdóttir leikur brúðina
en Ingunn Ásdísardóttir leik-
stýrir sýningunni.
Leikrit um brúði hlýtur að
vera kærkomið innlegg í
menningarlífið á brúð-
kaupssumrinu mikla árið
2000. En hvernig stóð á því að
Kaffileikhúsið varð fyrir val-
inu?
„Kaffileikhúsið er að hefja
mikla einleikjasyrpu og verk-
„Kannski er bara eins gott að
hað séu stelpurnar sem
keppa um uöndinn. Ef hópi
ógiftra karlmanna uæri att
bannig saman yrði bað eins
og rugbykeppni uið kirkju-
tröppurnar. Og beir uæru fyrir
löngu búnir að finna upp
leikreglur og búa til mörk.“
Ur leikritinu Bannað að blóta í
brúðarkjól.
ið mitt er það fyrsta í þeirri
röð. Leikhússtýran, Jórunn
Sigurðardóttir, vissi að ég átti
frumsaminn einleik og falað-
ist eftir honum.“
Heiti verksins bendir til
þess að innihaldið fjalli um
venjur og hefðir sem gilda um
brúðarkjóla. Kynnti höfund-
urinn sér það eitthvað sér-
staklega?
„Eg kynnti mér vel þær
serimóníur sem flestar kon-
ur fara í gegnum áður en þær
ganga upp að altarinu, svo
sem eins og það að láta steypa
á sig gervineglur og velja sér
réttu nærfötin. Flestar virðast
taka lengri tíma í að velja
samfelluna en að velta fyrir
sér hvort þær eigi að taka
bónorðinu.“
Það er sjálfsagt skrýtin til-
finning að fylgja fyrsta leikrit-
inu sínu úr hlaði. Hefur þú
fylgst vel með því á æfinga-
tímanum?
„Já, ég hef litið við á æfing-
um og það hefur verið óskap-
lega gaman. Nanna Kristín
er frábær leikkona og mér
finnst ég vera mjög hepp-
in að hún skyldi hafa
húmor fyrir leikritinu
mínu. Svo skemmtilega vill
líka til að Ingunn leikstjóri er
að fara að gifta sig í sumar og
hefur því sérstakan áhuga á
brúðkaupum þessa dagana.“
Gerður Kristný slær aldrei
slöku við. Samhliða því að
fylgjast með leikriti sínu á
fjölunum og ritstýra stóru
tímariti vinnur hún núna að
ljóðabók sem kemur út fyrir
næstu jól. En ætlar þú að taka
þér sumarfrí?
„Að sjálfsögðu, ég ætla á
Hróarskeldufestivalið þar
sem m.a. Filter og Pearl Jam
ætla að troða upp. Að festi-
valinu loknu dríf ég mig síðan
í sólina í Suður-Frakklandi."
Það verður án efa athyglis-
vert fyrir brúðir sumarsins
sem og aðra að líta við í Kaffi-
leikhúsinu og hlýða á hug-
renningar brúðarinnar.
„Hjálmar er óneitanlega suo-
lítið gott mannsetni. Hann er
sætur, í góðri uinnu, á bolan-
lega uini og suo á hann ekki
börn með einhuerjum kell-
ingum úti í bæ. Það er
kannski Ijótt að segja betta
með börnin en huernig er
hægt að ætiast til bess að
maður elski annarra manna
börnP Ekki má maður elska
eiginmenn annarra kuenna.“
Úr leikritinu Bannað að blóta í
brúðarkjól.
Gerður Kristný er
stórglæsileg í brúðar-
kjólnum. „Nú veit ég
af hverju konur eru
alltaf svo sætar og
prúðar í brúðarkjól-
um. Þeir eru svo
þungir og fyrirferðar-
miklir að það er ekki
hægt að gera neinn
óskunda í þeim.“
■%