Vikan


Vikan - 20.06.2000, Page 7

Vikan - 20.06.2000, Page 7
I I í Óli Palli fjögurra ára ásamt forcldruni sínuin, Gunnari «» Kannveigu, í skírnarveislu Böðvars, næstelsta sonarins. Óli cr clstur linim systkina. drekum. Mér nægði þó aldrei að vera með eitt módel í gangi í einu því á meðan eitt módel var að þorna vann ég við annað. A með- an ég var við þessa iðju hlustaði ég á útvarpið, Rás eitt. Það eina sem mér leiddist í útvarpinu voru þessir endalausu klassísku tón- leikar sem gerðu ekkert nema slíta dagskrána í sundur,“ segir hann. „Þegar ég kom heim úr skólanum hlustaði ég á lögin við vinnuna, síðan á miðdegissöguna og alla dagskrána þar til ég sofn- aði. Ég byrjaði á því að kveikja á útvarpinu þegar ég vaknaði. Það var alltaf slagur um útvarps- tækið því það var aðeins eitt til á heimilinu. Útvarpsleikritin á fimmtudagskvöldum voru topp- urinn á tilverunni. Útvarpið hætti 5Ó að fullnægja þörfum mínum með tímanum og ég fór að leita og gramsa eftir meiri tónlist,“ segir Oli Palli. „Pabbi og mamma byrjuðu bú- skap sinn í Reykjavík en fluttu upp á Skaga þegar pabba bauðst vinna sem verslunarstjóri í Karnabæ á Akranesi, 1971 eða 1972,“ segir hann. „Fínar hljóm- flutningsgræjur frá Karnabæ (Pioneer) voru fljótlega keyptar á heimilið og pabbi var duglegur að kaupa plötur, en svo þegar hann gafst upp á að vera búðar- loka dró snarlega úr öllum plötu- kaupum. Ég sat alla daga og drakk í mig tónlist. Um sjö ára aldurinn fannst mér Meatloaf flottastur og svo fékk ég stundum „lánaðar" plötur hjá frænku minni sem var nokkuð eldri en ég. Ég var víst ekki alveg nógu duglegur að skila þeim aftur,“ segir Oli Palli og brosir. „Ég man að ég spilaði eina plötuna henn- ar, „A Night at the Opera“ með Queen, alveg í tætlur. Ég eign- aðist kassettutæki þegar ég var 10 ára, líklega, og safnaði saman flottustu lögunum,“ segir hann. „Ég mætti með kassettur í öll bekkjarpartí í skólanum við mis- jafnar vinsældir bekkjarfélaga minna. Þetta var fyrir tíma þeirr- ar stórkostlegu uppfinningar sem var einhvern tíma kölluð „vasadiskó“ og ég mætti með litla kassettutækið mitt í skólann á hverjum degi um tíma, sat svo og þvingaði Sex Pistols, Fræbblun- um og Utangarðsmönnum upp á bekkjarsystkini mín allar frí- mínútur og auðvitað í rútunni á öllum skólaferðalögum. Ég held að ég hafi verið heltekinn af tón- list frá tveggja ára aldri og áhug- inn hefur ekkert dvínað, nema síður sé,“ segir Oli Palli. Orðljótur krakki Þegar Óli Palli var fimm ára var hann sendur í sumarbúðir að Brekku í Skagafirði. Hann þótti óþægur og eins og allir vita er það allra meina bót að senda óþekkt- aranga í sveit. Hann dvaldist þar allt sumarið ásamt 20 öðrum krökkum, aðallega strákum. „Þetta líktist í engu þeim sum- arbúðum sem tíðkast í dag,“ seg- ir hann. „Við vorum vaktir á morgnana og síðan sendir út, þá borðuðum við hádegismat og vorum sendir út aftur og svona gekk þetta allan daginn fram á kvöld, a.m.k. í minningunni. Mat- ur og út að leika á víxl. Þegar pabbi og mamma komu að sækja mig um haustið var ég í gleðivímu yfir því að vera loksins á leiðinni heim, og þegar húsfreyjan á bæn- um spurði mig hvort ég kæmi ekki aftur sagði ég auðvitað já. Það var gaman á Brekku þó svo það væri ekki alltaf verið að finna upp á einhverju til að gera fyrir mann. Við strákarnir fundum okkur alltaf eitthvað til að gera en ég var stundum laminn vegna þess að ég hélt með í A í fótbolta. Hinir voru flestir í Val eða KR og þar að auki var ég einn af þeim alyngstu og sá eini af Skagan- um,“ segir hann. „Mörgum árum síðar var ég á ferð í Skagafirði með tveimur vinum mínum. Mér datt í hug að skreppa í heimsókn að Brekku og sníkja kaffi. Ein- hver kona sem ég þekkti ekki

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.