Vikan


Vikan - 20.06.2000, Side 14

Vikan - 20.06.2000, Side 14
Arftaki fjögurra islendíngar hafa jafnan haft gaman af að velta fyrír sér hvað gangi í ættir. Meðal hess sem talið hefur verið arfgengt er mælska, greind, verklagni og gott útílit. Á síðari árum hafa menn hins vegar velt hví mikið fyrir sér hvað sé raun- verulega skráð í erfðaefni mannsins og hvað sé lært í uppvextinum. Ásthildur Einars- dóttir harf sennilega ekki að veikjast í neinum vafa um hað hvað hún hefur lært en sá er munurinn á henni og öðrum að hekking hennar er fengin í arf frá formæðrum og forfeðrum sem læknuðu og líknuðu sjúk- um á íslandi allt frá hví í byrj- un sjautjándu aldar. Ásthildur er nefnilega dáttir Ástu Er- lingsdóttur grasalæknis sem var dóttir Erlings Filippussonar grasalæknisins sem Landlækn- isembættið kærði og ætlaði að banna að starfa. Af hví banni varð bó ekki sjúklingum hans til mikillar gleði. En er bað satt að hau geti rakið lækninga- hefðina alit aftur til ársins sextán hundruð? „Já, það er rétt. Grasalækninga- " hefðin hefur verið óslitin í minni CU ■jf ætt frá 1600. Fyrst hefur þekking- •- in sennilega mest verið notuð til að hjálpa sér og sínum en svo Z þróast þetta. Formæður mínar •o o voruljósmæðurogþærþurftuað m = læraaðbjargasér. Tilerheilmik- ra ° iðafskráðumfrásögnumafþess- — í um ættmennum mínum. Ég man ~ C vel eftir þvf þegar ég var í gagn- | fræðaskóla að kennararnir okk- ar lásu oft fyrir okkur sögur og ^ o frásagnir meðan við vorum að “ o vinna verkefnin. Páll Pálsson 'ö ° prestur á Bergþórshvoli kenndi « .. méroghannlasgjarnanfrásagn- ” ~ ir af merku fólki. Ég þekkti mörg x <= nöfnin sem þar komu fyrir, með- “s al annarra nafn Þórunnar Gísla- dóttur Ijósmóður sem var langamma mín. Það hefur ailtaf einhver tekið við og hlekkurinn hefur aldrei slitnað. Auðvitað er það svo að hver kynslóð hefur síðan bætt við þekkinguna og notað hana eftir því sem fyrst og fremst hefur verið þörf á. Ég les mikið og hef kynnt mér líffærafræði sem hefur hjálpað mér mjög mikið einkum þegar ég er að fást við ýmis sár. Ég hef sömuleiðis lært fegrunarsérfræði hjá Margrét Hjálmtýsdóttur og það hefur verið ómetalegt þegar ég hef verið að fást við húðina og ýmis vandamál tengd henni. Húðin er reyndar helsta áhuga- svið mitt og ég les allt sem ég kemst yfir henni tengt. Mitt eft- irlætisviðfangsefni er að græða sár. Við systkinin erum öll að fást við grasalækningar þótt öll séum við menntuð hvert á sína vísu. Sennilega nýtum við öli þekk- ingu okkar að einhverju leyti við grasalækningar og einbeitum okkur að mismunandi hlutum. Sinnir íhróttamönnum um allan heim Áhugi minn á að vinna sjálf með jurtir jókst mikið þegar son- ur minn fór að stunda íþróttir. Hann fékk oft slærn sár og álags- verki í ökkla og hné. Ég fór að þróa krem til að hjálpa honum og nú leita félagar hans til mín til að fá aðstoð þegar þeir meiðast. Ég hef oft fengið beiðni um hjálp frá íþróttamönnum í öðrum liðum og nokkrir af íþróttamönnum okkar sem eru að vinna erlendis hafa beðið um að fá kremin send. Ég sýð einnig jurtaseyði sem hressir og endurnærir þegar fólk þjáist af þreytu vegna álags eða ofreynslu. Drengurinn minn á það til að ætla sér um of því áhug- inn á íþróttum er svo mikill. Ég gaf honum seyðið sjálf til að byrja með þegar ég fann að hann var þreyttur en nú biður hann mig sjálfur um það þegar hann veit að hann þarf á því að halda. Ég held að það sé jafnvel betra að hann þurfi að hafa fyr- ir að biðja um seyðið fremur en að ég haldi því að honum. Kannski yrði það til þess að hann fengist ekki til að drekka það. Ég er ákaflega varkár með mína þekkingu og bendifólkialltafá að leita læknis fyrst ef það hefur ekki þegar gert það.Sérstaklegaá þetta við þegar fólk kemur til mfn með ýmsa bletti á húðinni þá bendi ég á húðsjúkdómalækna. Ég sé það að húðkrabbamein er mun al- gengara en áður og fólk varar sig ekki nærri nóg á sólarbekkjun- um. Ég tel að ég geti oft gagnast ekki síst vegna þess að ég segi fólki hvert það á að leita.“ Ásthildur sýður jurtaseyði við blöðrubólgu og ýmsum maga- vandamálum. Hún hefur þróað meðferð fyrir fólk sem heldur ekki holdum en þótt ótrúlegt megi virðast er til fólk sem hef- ur áhyggjur af því að það sé of horað. „Það kemur vissulega fyrir að til mín leitar fólk sem er of grann- holda. Þetta fólk er búið að margleita til lækna og ekkert finnst að því en auðvitað er eitt- hvað að. Meltingin er að ein- hverju leyti ekki nógu góð. Ég gef fólki seyði sem bætir melting- una og í þessum tilfellum er ég mjög ánægð ef fólkið þyngist um fjögur til fimm kíló. Ég hef sömu- leiðis áhyggjur af hinni miklu saltneyslu íslendinga. Salt bind- ur mjög vökva í líkamanum og margir þjást af bjúg af þeim sök- um. Ég get hjálpað fólki að losa umfram vökva úr líkamanum en þá verður líka að draga úr salt- neyslu til að sagan endurtaki sig ekki. Margir átta sig ekki á að salt er í svo ótrúlega mörgum vöru- tegundum sem við kaupum og notum þannig að óþarft er að bæta því í matinn. Brauð er til að mynda saltað, smjör og flestar tegundir af áleggi. Sjálf hef ég ekki notað salt í þrjátíu ár. Það eru til svo margar kryddtegund- ir, jurtakrydd og fleira sem nota má og salt er óþarft." Jurtír ofnýttar og eyði- lagðar Ásthildur hefur líka miklar áhyggjur af því hvernig við göng- um um náttúruna. Hún er um- hverfissinni og vill vernda náttúr- una eins og hægt er. „Ég minnist þess að fyrir nokkrum árum var mjög í tísku að nota blóðberg til að krydda lambakjöt. Við fjölskyldan höfð- um þá nýlega heimsótt einn af mínum uppáhaldsstöðum til að taka blóðberg og ég sá að það þurfti um það bil viku í viðbót til að verða mjög gott. Þegar við komum aftur að þeirri viku lið- inni höfðu einhverjir heimsótt staðinn og reytt upp allt blóð- 14 Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.