Vikan


Vikan - 20.06.2000, Qupperneq 26

Vikan - 20.06.2000, Qupperneq 26
öðru hverju og við verðum að muna hvað það var sem dró okkur að hvert öðru í upphafi. Við eigum að minna hvort annað á það öðru hverju. Setn- ingar eins og „Framhandlegg- irnir á þér eru alveg jafn fallegir og þeg- ar ég varð skotin í þér fyrst.“ Eða „ Allt í einu minntirðu mig á það þegar þú varst að reyna að opna bíl- hurðina fyrir mér fyrsta kvöldið okkar.“ Sumir, og þá sérstaklega karlmenn, eiga stundum erfitt með að byrja á slíkum ástarjátningum og þá verður að hjálpa þeim til þess með því að spyrja t.d.: „Af hverju bauðstu mér upp en ekki stelpunni í rauða kjóln- um?“ Þeir munu verða þakk- látir tækifærinu til að tjá sig um skemmtilegar minningar úr sambandinu því þeir hafa sömu þörf fyrir ást og þarfn- ast þess ekki síður en konurn- ar að finna til sterkar sam- kenndar með maka sínum. Við verðum að muna að við erum ekki bara hús- eða bíl- eigendur, foreldrar, kokkar eða viðgerðarmenn, við erum manneskjur sem höfum val- ið hvor aðra að lífsförunaut og það ætti að vera okkur ánægja ekki síður en skylda að vinna okkur saman út úr vandanum þegar við lendum í honurn (ÖLL hjón lenda einhvern tíma í vanda) og hjálpa hvort öðru í gegnum erfiða kafla í lífinu. Við verðum að muna að við erum líka elskendur og það má ekki gleyma að sinna ást- inni, hún þrífst ekki hjálpar- laust. Að fara eða vera Hjónabönd sem stranda sökkva ekki endilega. Stundum má draga fleytuna á flot aftur og skemmtilegasta siglingin gæti verið framundan. Reykvísk hjón á fertugs- aldri. Hanri: „Það munaði ekki miklu að hjónabandið endaði með skilnaði fyrir nokkrum árum. Við höfðum fjarlægst hvort annað meira en góðu hófi gegnir í hjónabandinu. Það var ekki fyrr en okkur lenti alvar- lega saman að við gerðum okk- ur grein fyrir að við vorum komin hættulega nálægt ]rví að gera út af við hjónabandið. Umskiptin áttu sér stað þeg- ar ég stakk upp á því að ég færi einn í sumarfrí til útlanda, en mér hafði verið boðið í golf- ferð. Konan mín hafði aldrei viljað vera með í golfinu, hvorki að leika það með mér né koma með þegar ég fór eitthvað með golffélögum mínum og þeirra kon- um. Mér fannst hún ekki sýna mér eða mínum áhugamálum neinn áhuga. Mér datt ekki í hug annað en að hún yrði feg- in að losna við mig ef ég færi einn.“ HÚfl: „Eg fann til svo mikils sársauka þegar hann stakk upp á þessu. Ég hafði alltaf verið afbrýðisöm út í golfið og nú fannst mér hann vísa mér algerlega á bug. Ég var hætt að vera hluti af lífi hans, bara af því að ég vildi ekki og gat ekki spilað golf. Við vorum hætt að gera nokkuð saman annað en að fara í Hag- kaup eða Bónus einu sinni í viku. Mér fannst hjónabandið vera endanlega búið þegar hann stakk upp á þessu einkafríi sínu og ég vildi frekar enda það alveg en að horfa upp á manninn minn fjar- lægjast mig endalaust. En svo var okkur boðið að fá lánað- an sumarbústað í eina viku. Ég vildi fyrst ekki fara, ég var viss um að það yrði ekk- ert annað en sorg og sút þar sem við myndum gera upp skilnaðinn en hann krafðist þess að ég kæmi með sér og lof- aði að keyra mig heirn um leið og ég bæði um það. Við fórum.“ Hantl: „Ég var enn svo hrifinn af henni og þegar ég sá alvöruna hjá henni gerði ég mér grein fyrir hversu mikla skyssu við vorum að gera. Þegar við komum ein og barnlaus í sumarbústaðinn settumst við niður fyrsta kvöldið og rifjuðum upp þegar við kynntumst. Við fundum bæði að þessi ást var enn til staðar, það var bara búið að svelta hana svo lengi. Ég sagði henni hversu rnikið ég elskaði hana og hún sagði mér hversu mikið hún hafði saknað mín þegar ég var ekki hjá henni. Þá loksins skildum við hvers við vorum að fara á mis við.“ HÚn.„Þetta voru dásamlegir dagar. Við fundurn bæði hvað við þörfnuðumst hvort annars. Ég sem hélt að hjónaband- ið væri búið að vera. Við skildum að við yrðum að vera saman og losa tíma til að njóta hvort annars ef þetta ætti að ganga upp. Við höfum alltaf gætt þess síðan að taka okkur tíma til að rækta ástina. Við forgangsröðum öðruvísi, við erum núna í fyrsta sæti hjá hvort öðru, svo er hægt að sinna öðrum málum þegar við erum sátt við samvistir okkar.“ Þegar allt er búið er stundiim best ao loka dosinni 42 ára kona: „Kannski elskuðum við aldrei hvort annað. Þegar ég hugsa til baka man ég bara að mér fannst hann myndarlegur og mér fannst að hann gæti orðið góður eig- inmaður. Ég hélt samt að ég væri ást- fangin. Ég gerði mér grein fyrir að hjónaband- ið gæti ekki gengið lengur eitt kvöld þeg- ar við fórum út að borða með foreldr- um mínum til að fagna gullbrúðkaupi þeirra. Ég dustaði hár af jakkanum hans þegar við stóðum upp frá borðum og hugsaði ekkert út í það meir. Þegar við vorum búin að fylgja gömlu hjónunum inn í íbúðina þeirra og vorum sest inn í leigubílinn aftur til að fara heim sagði hann mér að þetta hár hefði verið af ást- konu sinni og að nú vildi hann fá skiln- að. Ég hélt fyrst að þetta væri lélegur brandari en svo var ekki. Hjónabandið hafði verið „dáið“ lengi. Við höfðum ekki sofið saman í meira en ár og við höfðum aldrei talað saman um það. Mér fannst aldrei að það væru nein vandamál í gangi hjá okkur. Við höfðum búið saman í 17 ár og aldrei rif- ist þótt við ættum það til að talast ekki við ef við fórum í fýlu, en það jafnaði sig alltaf með tímanum. Eftir á að hyggja áttum við kannski aldrei neitt sameig- inlegt nema að vilja búa í þessum bæ og að vilja eignast börn. Mér líður betur núna en fyrst eftir skilnaðinn. Ég er farin að venjast því að vera ein en það var erfitt fyrst. Samband hans og konunnar entist ekki og hann býr líka einn hér í nágrenninu. Við þvæl- umst ekkert fyrir hvort öðru. Við hefð- um aldrei skilið að mínu frumkvæði, en sennilega var þetta best svona. Við bjuggum bara í sama húsinu, ann- að var þetta hjónaband ekki.“ Nokkur góð ráð tii að bæta sambandið: Ekki gagnrýna nema að hrósa í leiðinni og byrjaðu á hrósinu t.d.: „Þú býrð til svo gott kaffi, nú þarftu bara að læra að setja bauk- inn upp í skáp á eftir." Þakkaðu það sem vel er gert t.d. ..Mér finnst svo gotl þegar þú...“ Ekki alhæfa, það skapar reiði t.d.,. Þú lok- ar aldrei klósettsetunni el'tir þig." 26 Vikan
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.