Vikan - 19.12.2000, Blaðsíða 11
líka að læra aðsyngja þannigað
ég var tvö ár í viðbót í skólan-
um og bætti við mig B.A.- prófi
í söng.“
Kvöldiðgóða í skólanum varð
ekki eina kvöldið sem Tena söng
með Chelsea Bridge. Hún þáði
starf hjá þeim og söng með
þeim í mörg ár. ,,Ég ferðaðist
með þeim í fjögur til fimm ár
og sá tími var mjög gefandi. Við
vorum meira og minna á ferð-
inni og ég var sjaldan heima. Ég
átti hund í átta ár og það end-
aði með því að ég varð að gefa
hann, hann var miklu oftar á
hundahótelinu heldur en hjá
mér.“
Chelsea Bridge spilaði inn á
tvær plötur, kom víða fram á
jasshátíðum og vann til margra
verðlauna. „Kvartettinn varsvo-
lítið sérkennilega uppbyggður;
bassi, trommur, saxófónn og
söngur. Það var enginn gítar og
ekkert píanó. Þessi hljóðfæra-
skipan gaf okkur frelsi til þess
að gera ýmislegt sérstakt, t.d.
spiluðum við keltneska tónlist
með jassívafi og vorum þekkt
sem keltnesk jasshljómsveit.
Einhvern tíma bættum viðfleira
fólki við, breyttum kvartettinum
í tíu manna hljómsveit og spil-
uðum saman inn á plötu.“
Elska að syngja!
Tilviljun réð því að Tena kom
til íslands.,,Eftir alIt flakkið var
ég farin að þrá að vera um kyrrt
einhversstaðar. Einn daginn var
bassaleikarinn í Chelsea Bridge
að tala við Sigurð Flosason í
símann. Þeir voru saman í skóla
á sínum tíma. Siggi sagðist vera
að leita að jasssöngkennara fyr-
ir FÍH og það endaði með því
að mér var boðið starfið og þáði
ég það. Satt að segja vissi ég
ekki hætishót um ísland á þeim
tíma, en ég virtist vera ein um
það. Það var alveg sama hverj-
um ég sagði að ég væri að fara
til Islands, viðbrögðin voru alltaf
þau sömu: ,,En hvað þú áttgott,
mig hefur alltaf langað til þess
að fara til íslands"! Það hafði
greinilega alla langað þangað
nema mig. Mér líkaði síðan
strax vel við bæði landið og skól-
ann. Ég er fyrsti raunverulegi
jasssöngkennarinn við skóla
FÍH. Ég kenni söng og öll litlu
atriðin í sambandi við jassinn,
rythmann, spunann og mis-
munandi söngaðferðir sem jass-
söngvarar verða að hafa á valdi
sínu."
Ferðast um með lög og Ijóð
Það er erfitt að henda reiður
á söng- og tónlistarferli Tenu.
Þótt hún sé búin að festa ræt-
ur á íslandi er ekki þar með sagt
að flakkinu sé lokið. ,,Eftir að
ég lauk námi hef ég nokkrum
sinnum fengið styrk frá
kanadísku stjórninni til þess að
læra erlendis. Ég varði þremur
árum í að læra í New York og
Osló. Ég fer oft til Svíþjóðar í
þeim erindagjörðum að kenna
þar við tónIistarskóla og ferð-
ast um allan heim til þess að
taka þátt í tónIistarhátfðum og
námskeiðum."
Tena er mjög hrifin af Ijóð-
list og hefur gert talsvert af því
að semja tónlist við uppáhalds-
Ijóðin sín. ,,Ég vann á tímabili
með Justin Haynes, sem er
mjög góður lagasmiður og pí-
anóleikari, og þaðsamstarf end-
aði með plötu sem heitir Not
Drawning ..waving... Það er
mjög góð plata sem mér þykir
vænt um. Við unnum mikið með
Ijóð og sömdum við þau lýrísk
og mjúk lög. Söngstíll minn
breyttist, hann varð mjög
mínimalískur og textinn fékk
meira rými. Éggerði ekki ósvip-
að hér á Islandi árið 1998 á
plötu sem Smekkleysa gaf út og
heitir Frjálst er í fjallasal. Þar
söng ég með mjög góðum ís-
lenskum tónlistarmönnum, allt
reyndum popptónlistarmönnum
og það var nýtt fyrir mér. Á plöt-
unni komum við fram undir
nafninu Crucible, sem er líka
nafniðá plötunni. Hilmar Jens-
son, sem framleiddi þessa
plötu, bað mig að vera með og
mérdatt ekki í hugað segja nei!
Þarna er að finna nokkra Ijóða-
hluta sem ég samdi, ásamt
Pétri Grétarssyni, undiráhrifum
frá Ezra Pound.
Ég er hrifin af Ijóðum og
Ijóðasöng og fyrir sjö árum
heyrði ég fyrst í norska Ijóð-
skáldinu, lagasmiðnum og
söngkonunni Sissel Anderson.
Um leið og ég heyrði í henni í
fyrsta sinn hugsaði ég með mér
að þarværi hún komin, persón-
an sem ég hefði verið að leita
að. Seinna, þegar ég var stödd
í Osló, lét ég verða af því að
hringja í hana. Hún átti von á
gestum í mat en eftir nokkurra
mínútna samtal slökkti hún
undir pottunum og við töluð-
um saman I langan tíma. Ég
var svo taugaóstyrk meðan ég
talaði við hana, eitt af ídólun-
um mínum, að þegar vinur
minn gekk inn í herbergið þar
sem ég sat við símann veifaði
ég til hans og gaf honum bend-
ingu um að kveikja fyrir mig í sí-
garettu. Þá hafði ég ekki reykt
í mörg ár! Við Sissel erum enn
þá í sambandi og höfum unnið
saman sitt og hvað.“
Tena lætur sér ekki nægja að
kenna á íslandi. ,,Éger í hljóm-
sveit sem heitir Felicidade. Við
spilum saman brasilískt og
portúgalskt samba og
bossanóva. í hljómsveitinni eru
frábærir íslenskirtónlistarmenn
og ég syng með þeim, aðallega
á portúgölsku. Ég var einhvern
tíma í nokkra mánuði í Portú-
gal, þar sem ég lærði smávegis
í málinu, og á vin í Montreal
sem hefur kennt mér svolítið
meira. Ég er í annarri hljómsveit
sem heitir Alba ogsú hljómsveit
spilar keltneska söngva. í þeirri
hljómsveit spila ég á flautu. Við
komum stundum fram á sunnu-
dögum á Dubliners og einnig
höfum við spilað í galleríum og
á litlum samkomum. Þessi
hljómsveit spilar lög sem
standa mér nær. í móðurfjöl-
skyldu minni eru margirsöngv-
arar, fiðluleikarar oggítarleikar-
ar. Þegar ég var í háskólanum
og varð leið á tónlistinni sem
égspilaði dagsdaglegafórég oft
upp ísveitogspilaði meðfiðlu-
leikurunum. Fyrir utan þessar
tvær hljómsveitir hef ég líka ver-
ið að æfa með hljómsveitinni
Crucible. Þannig að það er nóg
að gera þó að markaðurinn sé
lítill. En margmennið skapar
líka fjölbreytni, það krefst þess
að við verðum að spila margs
konar tónlist. Það er t.d. ekki
hægt að spila tilraunatónlist
þrjú kvöld í viku. Það eru hrein-
lega ekki nógu margir áheyrend-
ur til þess."
Ótæmandi möguleikar
,,Ein ástæða þess hvað mér
þykir frábært að vera á íslandi
er sú að hér eru svo margir
möguleikar í tónlistinni. Hér er
allt svo afslappað og jafnframt
gott næði til þess að reyna hitt
og þetta. Ég get nefnt sem
dæmi að ef ég væri í Nova
Scotia væri égekki aðspila kelt-
neska tónlist. Þar er líklega rík-
asta hefðin fyrir þannig tónlist
í heiminum og allt þarf að vera
í föstum skorðum."
Undanfarið hefur Tena verið
önnum kafin við að æfa með
nýrri hljómsveit sem hlotið hef-
ur nafnið Gras og Tena kallar
Vikan 11