Vikan


Vikan - 19.12.2000, Side 49

Vikan - 19.12.2000, Side 49
hröksem ekkertgildi hafi nema að sjálfsögðu á hæsta spil í hverjum litslaginn ef allir leggja út hrök og í slíkum tilvikum drepa tvistarnir kónginn (ath. tígulkóngur er undantekning) og drottninguna en þristarnir drottninguna þótt kóngurinn sé hærri en þeir. Sjöurnareru bæði hæstarog lægstar í spilaröðinni; séu þær settar út af þeim sem er í forhönd getur ekkert spil drepið þær, en þær má ekki setja út fyrr en maður hefur fengið slag, en séu þær settar út í slag þegar annar er í for- hönd eru þær lægstarallra spil- anna. Þegarfjórirspila alkort skipt- ast menn í tvö lið og draga sig saman með spilunum. Venjan er sú að litur ráði liðskipan en ef margir draga sama lit eru töl- urnar látnar ráða og þeir sem næstir eru hverjir öðrum að tölu- gildi spila saman. Gjafarinn stokkar því næst spilin og sá sem er í forhönd tekur ofan af stokknum og gefið af þeim hluta sem ofan var tekinn fyrst. Venjulega reyna menn að kíkja á neðsta spilið og sjá til þess að það sé gott. Gjafarinn gefur síðan og á hann venjulega hægt með að sjá hvar neðsta spilið lendir. Hverjum manni eru gef- in níu spil og þau sem eftir eru lögð á borðið. Átta spil eru í stokknum og venjan er sú að geti einhver ekki lagt út í sama lit og er í fyrsta slagnum eða ef hann hefur ekki svo hátt spil á hendi að hann geti drepið ein- hverja áttuna þá má hann fleygja sínum spilum nema einu og taka stokkinn í staðinn. Sumir gera ráð fyrir að spilafé- lagar í alkorti fái að sjá spil hvor annars en aðrir hafa þá reglu að það megi ekki. Síðan erspil- að þar til annað hvort liðið hef- ur fengið fimm slagi og eru þeir þá sigurvegarar. Hjónasæng Hjónasæng er bráðskemmti- legt spil og var víða mikið spil- að. Byrjað er á að teikna mynd á blað sem sett er á mitt spila- borðið. Teikningin Iítur oftast út eins og sjá má hér á síðunni. Álmurnar eða armarnir út úr sænginni verða að vera jafn- margir og spilararnir. Fyrsti hringurinn við endann á hverj- um armi heitir koppur, strikið sem er höfn númer tvö heitir koppbarmur, þriðja höfn er pall- stokkurinn, fjórða rúmstokkur- inn og sú fimmta sjálf hjóna- sængin. Hver spilari hefur ein- hvers konar tákn sem hann fær- ireftirhöfnunum, þaðgeturver- ið glerbrot, eldspýta eða smákaka. Gjafarinn gefur næst fimm spil og forhandarmaður slær út. Sá drepur slaginn sem á hæsta spil í sama lit og er á borðinu og hann kemst á kopp- inn, næst bograr hann upp á barminn því næst er haldið áfram þartil einhverspilaranna hefur náð að komast í hjóna- sængina. Venjulega þóttist sá sem Alkort var mikið spilað sér- staklega á jólum og um ára- mót. Ekki er þó hættulaust að spila það á jólanóttina. Sagt var að þegar illindi yrðu yfir alkorti á jólanóttina eða hald- ið væri áfram að spila eftir að háheilagt væri orðið kæmi sá vondi oft í spilin í líki ann- ars tígulkóngs. Þá var talað um að fjandinn væri kominn f spilið. komst ( hjónasængina hafa himin höndum tekið, enda var víða siður að velja brúði í sæng- ina áður en byrjað var að spila og yfirleitt laglegustu stúlku sem völ var á. Hins vegar þótti hin versta skömm að komast ekki lengraenákoppinnogorð- takið að komast á koppinn er þaðan runnið. Litlu betra þótti þó að húka eftir á rúmstokknum þegar annar skaust fram hjá manni í sængina og hefur það sennilega verið þeim sem kúrði á koppnum nokkur huggun harmi gegn. Vikan 49

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.