Vikan


Vikan - 19.12.2000, Side 50

Vikan - 19.12.2000, Side 50
Svona er lífið! Mjög margar konur lenda í vandræðum á vinnustað vegna persónulegra samskipta. Konur eru gjarnar á að trúa vinnufélögum sínum (karl- og kven- kyns) fyrir sinum hjartans málum og mjög margar konur lenda í samskipta- IU fljóttP Margar konur eru feimnar við að vera skapstórar og reyna að fela reiði sína þegar fýkur í þær. Það er auðvitað ekki nema gott um það að segja að fólk kunni að hemja skap sitt, en oft er reið- in réttlát og þá er betra að bregðast við henni en byrgja hana inni. Konur eiga fyrst og fremst (eins og allir aðrir) að viður- kenna það fyrir sjálfum sér að þær séu reiðar. Það er hægt að fá útrás fyrir reiðina á margan hátt og ef maður er ekki tilbú- inn að rífast eða að taka áhætt- una á því að missa vini vegna uppgjörs verður auðvitað að bregðast skynsamlega við. Það er nefnilega ekki alltaf best að þegja, það minnsta sem hægt er að gera er að láta þann sem reitti mann til reiði vita að mað- ur hafi reiðst við orð hans eða gerðir. Gamla ráðið, að telja upp að tíu áður en þú svarar fyrir þig, er enn við lýði. Það er gott að gefa sér tíma til að láta sjatna í sér áður en málin eru rædd og það er um að gera að spyrja sjálfan sig: hef ég raunverulega ástæðu til að reiðast þessu? áður en farið er að gera upp sak- irnar. vanda af þeirri ástæðu. Oft myndast náið samband milli vinnufélaga og stundum verða samstarfs- menn vitni að símtölum og heimsóknum sem sýna þeim inn í heimilisað- stæður og jafnvel ástamál hvers annars. Það er samt ekki þar með sagt að þeir þurfi að fá nákvæmar skýringar eða vitneskju um það sem um er að vera og það er ekki einu sinni víst að þeir kæri sig um að fylgjast með einka- lífi þess sem situr á næsta borði eða í næsta herbergi. Samkvæmt nákvæmri könnun tveggja breskra sálfræðinga virðist vinnu- staðurinn alls ekki rétti staðurinn fyrir trúnaðarsamtöl, jafnvel ekki hjá þeim vinnufélögum sem eru vinir og treysta hver öðrum. Þeir Butler og Campden tóku viðtöl við fjölda kvenna á breskum vinnustöðum og niðurstöður þeirra benda eindregið til þess að þau trúnaðarmál sem fara á milli manna á vinnu- stöðum séu alls ekki vel geymd. í langflestum tilfellum varð einhver misbrest- ur á trúnaðartraustinu; frásögnin var oft misskilin, ekki var þagað yfir sög- unni þegar farið var fram á það og stundum var sá sem trúað var fyrir leynd- armáli ekki sáttur við að vera dreginn inn í málið. Það virtist skipta miklu máli hvar málin voru rædd og þegar samstarfs- konur trúðu hvor annarri fyrir leyndarmálum utan vinnustaðar varð niður- staðan allt önnur. Afgreiðslufólk þekkir þig ekki þegar þú kemur inn ( búðina til þess. Jafnvel fólk með mikla þjónustulund oggóða þekkingu á vörunni getur fælt frá sér viðskiptavini með því að sinna þeim ekki á þann hátt sem þeir vilja og það er ekkert undarlegt því viðerum ekki öll eins. Sumirganga inn í verslunina og vilja láta benda sér á ein- hvern vissan hlut strax og ákveða á stund- inni hvort þeir vilja kaupa hann eða ekki. Aðrirviljafá aðganga um verslunina ífriði og finnst óþægilegt þegar afgreiðslufólk- ið skiptir sér af því. Gefðu afgreiðslufólkinu tækifæri til að þóknast þér, biddu strax um aðstoð ef þú vilt fá hana en ef þú vilt fá að vera í friði skaltu segja við afgreiðlufólkið: „Ég ætla bara að skoða, ég læt þig vita ef ég þarf á aðstoð að halda.“ 50 Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.