Vikan - 19.12.2000, Qupperneq 63
dagsrúnir
^fékv.
í A ;í;.
Y — v
iffi
27. desember
Merki dagsins er Arnarstafur og ber í
sér;
Aðgæslu, fyrirhyggju, heiðarleika ogtalsverða
árvekni, ásamt félagslyndi og útsjónarsemi.
•AJJfe.
A;?-.
Ýsf
28. desember
Merki dagsins er Sviprún og ber í sér:
Framsækni, útsjónarsemi, vinafestu ogsvolitla
tortryggni, ásamt sköpunargáfu og veiði-
kænsku.
Y- A Y.
Y- y,
f=4
29. desember
Merki dagsins er Draumauga og ber f
sér:
Veiðikænsku, vinafestu, útsjónarsemi ogtals-
verða sköpunarþörf, ásamt fyrirhyggju og
draumlyndi.
St&k.
é I
f.. f
30. desember
Merki dagsins er Brauðrún og ber í
ser:
Útsjónarsemi, afhafnaþörf, örlyndi ogtalsverða
vanafestu, ásamt heiðarleika og fyrirhyggju.
/W:\
W
v .••. Y
31. desember
Merki dagsins er Krosssgötustafur og
ber í sér:
Heiðarleika, aðgæslu, draumlyndi og oftast
talsverða fyrirhyggju, ásamt útsjónarsemi og
félagslyndi.
Y JL Y-
•Y A ,ý,
Y- •Y,
v . y
aJa
1. janúar
Merki dagsins er Þrífótur og ber í sér:
Smekkvísi, afkomugetu, víðsýni og talsverða
þekkingarþörf, ásamt bjartsýni og dálítilli tor-
tryggni.
f. f
2. ianúar
Merki dagsins er Sleipnir og ber í sér:
Þolinmæði, bjartsýni, útsjónarsemi og ekki er
laust við svolitla smámunasemi, ásamt þraut-
seigju og smekkvísi.
Spá Vikunnar
Hrúturinn
21. mars - 20. apríl
Það er margt sem bend-
ir til þess að þú munir
styrkjast fjárhagslega um jólin
hvernig sem á því stendur! Þú ætt-
ir annars að reyna að forðast mann-
fjölda um jólin og njóta frekarsam-
vista við fáeina útvalda. Jólin, og
sérstaklega áramótin, verða þér
mjög góð.
Vogin
24. september - 23.
október
Desembermánuður hef-
ur verið nokkuð erfiður og þú ert far-
in(n) að finna fyrir þreytu. Róman-
tíkin ræður ríkjum hjá vogunum og
þú ættir að geta fundið þér tíma til
að eiga góðar stundir um jólin.
Heimilið, vinirnir og ættingjarnir
verða í fyrsta sæti.
Nautið
21. apríl - 21. maí
Það verður ekki fyrr en
rétt fyrir jólin sem þú
getur farið að slaka á og hugsa um
sjálfa(n) þig. Jólin verða þér kær-
komin hvíld frá störfum sem hafa
tekið allan þinn tíma undanfarið
og þú lærir að sjá einhvern góðan
vin í nýju Ijósi.
Tvíburinn
22. maí - 21. júní
Þessi mánuður hefur
verið þér frekar góður
en jólin verða þó langbest! Fjármál
hafa verið ofarlega á baugi, en nú
snýst dæm ið við og þú ferð að hugsa
um allt aðra hluti. Þú munt njóta
þess innilega að sinna þér og þín-
um um hátíðarnar.
Krabbinn
22. júní - 23. júlí
Hugboð þín reynast rétt
eins og oft áður og þú
skalt fara eftir þeim. Margir krabb-
ar hafa saknað einhvers allan mán-
uðinn en nú er kominn tími til að
nálgast það og það er á þínu valdi.
Einbeittu þér að fjölskyldu þinni um
jólin, það mun færa þér gleði.
Ljónið
24. júlí ■ 23. ágúst
Það er mjög rómantísk-
ur kafli í lífi Ijóna um
oessar mundir og þú ert fegin(n) því
að geta einbeitt þér að tilfinning-
um þínum um jól og áramót. Ljón
ættu að taka lífinu með ró um jól-
in og umgangast ekki neina nema
þá sem þeir njóta að vera samvist-
um við.
Meyjan
24. ágúst - 23.
september
Margir í merkinu munu
loksins finna ástina í enda ársins og
þeir sem þegar hafa fundið hana
eiga eftir að njóta hennar innilega
um jólin. Það er þér nauðsynlegt
að blanda geði við aðra um jól og
áramót, láttu eftir þér að halda
veislu eða fara í boð þótt það sé ekki
þinn stíll.
Sporðdrekinn
24. október - 22.
nóvember
Þú hefur átt erfitt með
að setja þig inn í viss mál sem snúa
að þér. Svo virðist að hugur þinn
opnist allt í einu og lausn finnst. Þú
nýtir tíma þinn og hæfileika vel og
jólin verða þér mjög gleðileg vegna
þess að þú finnur fyrir aukinni
sjálfsstjórn og öryggi.
Bogmaðurinn
23. nóvember - 21.
desember
Málin virðast leysast
betur en þú áttir von á og það verð-
ur til þess að þér finnst þú hafa
meiri tíma en þú hélst. Reyndu að
semja við þá sem þú þarft, því það
mun gefa þér frið í hjarta um jólin.
Þú átt eftir að finna fyrir sterkri ást
og væntumþykju um jólin og ára-
mótin.
Steingeitin
22. desember - 20.
janúar
Þú ert í ævintýraleit
núna og þú munt finna þau. Allar
dyr virðast standa þér opnar og þú
getur valið úr tækifærunum hvar
sem þú ferð. Þú færð stuðning frá
óvæntum aðila um jólin og þú get-
ur bókað að jólin og áramótin verða
þér góð.
Vatnsberinn
21. janúar - 19.
febrúar
Einhverjar breytingar
munu verða á högum þínum um jól-
in o_g sennilega tekur þú ákvörðun
í máli sem þú hefur hugsað lengi.
Tími þinn er að koma! Erill desem-
bermánaðar verður bráðum aðeins
minning og þú getur farið að hlakka
til góðra tíma.
Fiskarnir
20. febrúar - 20.
mars
Þeir fiskar sem þurfa á
láni eða aðstoð að halda ættu að
leita til bankastjórans eða vinanna
núna. Annars eru fiskarnir á heim-
ilislegu nótunum og jólin ættu að
verða ein sannkölluð uppskeruhátíð
vegna þeirrar vinnu og fjár sem þeir
hafa lagt í heimili sitt að undan-
Amtsbókasafnið á Akureyri
03 591 307