Menntamál - 01.11.1931, Blaðsíða 9
MENNTAMÁL
8/
LeikstjóraefniÖ svaraÖi alvarlega: „Sjónleikurinn er ágœtur,
cn það kemst enginn skri'Öur á hann.“
Einu sinni var eg viöstödd ráÖstefnu i leikhúsinu. Umræ'Öu-
efnið var: „Sókrates og viðræður hans“. Við undirbúnings-
umræður hafði reynst ógerlegt, að koma Nanþippu að. Leik-
sviðið táknaði Aþenu, jiar sem Sókrates reikaði um á Agoran
með lærisveinum sínum. Þeir settust niður og hófu samræðu
í hrein-sókratískum anda. Það er viðtekin regla um hekkja-
sjönleiki okkar, að nemendur verða að halda sig við raunveru-
leikann og sýna aðeins atburði, sem hafa þýðingu. Samtal, sem
eigi er reist á þessum reglum, fær eigi að komast inn í sjón-
leik, því að það væri gagnslaus tímasóun. Persónur þær, sem
sýndar eru, verða að falla inn í efnið, vera sérkennilegar og
hafa einhverja þýðingu fyrir tímann, sem um er að ræða.
Eftirfarandi er hraðritað upp:
Sókrates (átta ára) er að tala: ,,— Eg trúi ekki á grísku
guðina, eg trúi bara á einn sannan guð.“ Nemandinn: „Eg
trúi á grísku guðina. Hvers vegna gerir ]>ú það ekki líka?“
Sókrates: „Eg trúi á guðsröddina í sjálfum mér.“ Annar læri-
sveinn: „Eg held þú hafir á röngu að stánda, Sókrates.“
Plató (kemur inn i ])essu) : „Eg held Sókrates hafi rétt íyrir
sér.“ Sókrates: „Ágætt! Þú ert fyrsti maður, sem hugsar
eins og eg.“ Plató: „Eg er lærisveinn þinn, Sókrates, og þú
ert kennari minn.“ Allir lærisveinarnir: „Sókrates hefir á réttu
að standa! Sókrates hefir rétt fyrir sér!“ Nú varð þögn, með-
an Sókrates lmgsaði næsta tilsvar. Svo hafði verið umtalað
fyrirfram, að erlendir komumenn skyldu sýna sig á leiksvið-
inu. Indverskur kaupmaður kom nii inn á sviðið, fyr en vera
átti, ríðandi á fíl. I Iann hélt, að hléið á samtalinu þýddi það,
að komið væri að næsta atriði, og kallaði: „Kaupið fijabein!
Kaupið fílabein! Tvo gullpeninga!“ Börnin urðu næsta skelfd
yfir þessari óvæntu truflun á spurningum Sókratesar. En Sókra-
tes sjálfur sneri sér við og sagði mjög virðulega: „Fílabein
til sölu —• fílabein! Nú datt mér nokkuð í hug, lærisveinar
mínir! Eg ætla að kaupa ofurliti'Ö af fílabeini handa konunni