Menntamál - 01.11.1931, Blaðsíða 15

Menntamál - 01.11.1931, Blaðsíða 15
MENNTAMAL 93 13. norræna kennaraþingið í Khöfn 6.—8. ág'úst 1931. I. Fyrsta norræna kennaraþingið var háÖ í Gautaborg 1870. Hugmyndin er eldri, upphaflega komin frá Danmörku. En SlesvíkurstríÖiÖ síÖara og missir SuÖurjótlands í hendur ÞjóÖ- verjurn þjappaði Norðurlandabúum saman, beindi hugum þeirra til aukinnar samúðar og öflugra samstarfs. Þá rann upp blóma- öld „Skandinavismans". Skáldin sungu um þrjár greinar á ein- um stofni og þrinnuðu taugina, sem trauðlega slitnar. Það var tilgangur kennaraþinganna að styrkja þessa taug, auka samúð- og samvinnu meðal alþýðukennara á Norðurlöndum og flytja menningaráhrif frá einni þjóð til annarar. Ekki er fyrir það að synja, að kennarajúngin hafi nokkuru áorkað i þessa átt. Þau hafa vafaláust vikkað sjóndeildarhring margra kennara, aukið kynningu stéttarbræðra og stéttarsystra meðal grannþjóðanna, rutt hraut ýmsum nýjungum, bæði kennsluaðferðum og kennslutækjum og þroskað skilning kenn- aranna á því, sem sameiginlegt er fyrir alla Norðurlancíabúa annars vegar, og hins vegar á þvi, sem sérstaklegt er fyrir hverja þjóð. Þingin' voru haldin til skiftis í Svi])jóð, Danmörku og Noregi. Finnland var þá enn háð Rússum og ísland „óaðskiljanlegur hluti Danaveldis“. Þeir fáu íslendingar, sem sóttu þingin, töld- ust meðal danskra þátttakenda. Svo var enn á þinginu i Stokk- liólmi 1910, en þar voru allmargir íslenzkir kennarar. Enn frem- ur í Osló 1920. Þá er þó ísland komið i tölu sjálfstæðra ríkja, eins og Finnland, enda er þess þá og minnst i sérstakri ræðu. II. Á þinginu i Helsingfors 1925 var þrinnaða taugin orðin fimmþætt. Þá blaktir íslenzki fáninn við hlið hinna fjögiirra

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.