Menntamál - 01.11.1931, Síða 20

Menntamál - 01.11.1931, Síða 20
98 MENNTAMÁL hefir gefið út. Er þar íslenzkum nútímabókmenntum skipa'Sur veglegri sess en áður hefir tíðkast i samskonar bókum. Mér skildist helzt, aÖ vinur okkar, Jón Þ. Björnsson á SauÖárkróki, œtti óbeinan og óafvitandi þátt í þessu. Útgefandinn var sem sé skólaljróÖir hans og mun hafa orðið fyrir meiri áhrifum frá honum heldur en Jón veit um. Gott sæði Ijer ávöxt á fleiri stöðum en sáðmanninn gruuar. Mér hefir dottið í hug, hvort vér, íslenzku kennararnir, hefð- um ekki haft mest not aí þingförinni með þvi að skoða sýn- inguna sem gaumgæfilegast, en láta fyrirlestra og umræður eiga sig að miklu leyti. Það getum vér lesið, hvort sem er, þeg- ar þingtíðindin koma. En þetta er nú í ótima talað, og verð- ur að vera „til athugunar framvegis“. VII. Það mun sennilega vera svo fyrir öllum fjöldanum, sem sækir kennaraþingin, að fyrir þeim séu fyrirlestrarnir og um- ræðurnar um uppeldis- og kennslumálin aðalatriðið, þeir fari fyrst og fremst til þess að hlusta á þessi mál. Eg fullyrði ekk- ert um það, en eg er hræddur um það, að árangur fararinn- ar að þessu leyti verði mörgum, jaínvel flestum, fremur litils virði. Til þess liggja margar ástæður, sem hér verða ekki tald- ar. En ein er öllum augljós: Þegar erindi eru flutt á 7—9 stöðum í senn, getur hver einstakur hlustað á eitt þeirra, en ekki meira. Af 75 erindum, sem flutt voru á 'þinginu í sumar, var hverjum einstaklingi mögulegt að hlusta á 10 í mesta lagi. Langflestir liafa heyrt færri. En, eins og áður er sagt, þetta sakar ekki svo mjög. Erindin koma prentuð á sínum tíma, og þá geta menn haft þeirra fyllri not, heldur en af að heyra þau flutt, ef til vill á máli, sem þeir skilja vel á bók, en mið- ur, þegar talað er. En svo er um skilning margra Norðurlanda- 1)úa á málum nágrannaþjóðanna. Af fyrirlestrunum eða inngangsræðúnum voru 43 fluttar á dönsku (41 Dani og 2 íslendingar), 19 á sænsku (14 Sví- ar og 5 Finnar) og 13 á norsku (Norðm.).

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.