Menntamál - 01.11.1931, Page 24

Menntamál - 01.11.1931, Page 24
102 MENNTAMÁL Óskar L. Steinsson, kennari í Hafnarfirði. Rannveig Þorsteinsdóttir, kennari við Málleysingjask. i Rvik. SigríSur Eiríksdóttir, kennari í Eloltahr., Rangvs. Sigríður Magnúsdóttir, kennari í Reykjavík. Sigriður Þórðardóttir, kennari i Dalahrepp, Barðastrs. Sigurður tleiðberg, kennari í Táknafjarðarhreppi, Barðastrs- Sigurður Jónsson, skólastjóri i Reykjavík. Þóra M. Stefánsdóttir, heimiliskennari í Reykjavík. Þorleifur Erlendsson, kennari í Skilmanna-, Leirár- og Mela— skólahéraði, Borgarfjs. Þuríður Jóhannsdóttir, kennari i Rvík. Um ríkisútgáfu skólabóka. Frumvarp til laga um ríkisútgáfu skólabóka var borið fram af þingmönnum jafnaðarmanna á vetrarþinginu 1931. Það komst til 1. umræðu i neðri deild, en fékk enga frekari af- greiðslu. Á þinginu i sumar var síðan þetta sama frumvarp borið fram í þeirri mýnd er það birtist hér. Aðalflutningsmaður var þá Vilmundur Jónsson, landlæknir. Að vísu náði frumvarpið einnig i sumar aðeins að komast til 1. umræðu i neðri deild og menntamálanefndar þeirrar deikl- ar. —- Frumvarpið er svo hljóðandi: 1. gr. — Allar þær bækur, sem á hverjum tíma eru löggilt- ar til kennslu i barnaskólum, skulu gefnar út og seldar af rík- inu, enda náist samningar við eigendur um útgáfuréttinn. 2. gr. —• Yfirstjórn útgáfunnar hefir útgáfustjórn. Hana skipa 3 menn, fræðslumálastjóri, sem er formaður stjórnarinn- ar, og 2 menn tilnefndir til 3 ára í senn, annar af stjórn sam- bands íslenzkra barnakennara, en hinn af menntamálaráðinu. Heimilt er kennslumálaráðherra að ákveða útgáfustjórninni

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.