Menntamál - 01.03.1944, Blaðsíða 5

Menntamál - 01.03.1944, Blaðsíða 5
MENNTAMÁL 51 helgað sig skólastarfinu af heilum hug. Er ég sannfærð- ur um það, að íslenzkir skólar mega vænta sér mikilvægs starfs af honum.“ Þá er Helgi kom úr Þýzkalandsför sinni, gerðist hann aftur kennari við Miðbæjarskólann og 1930—31 jafn- framt aðstoðarmaður í fræðslumálaskrifstofunni. Frá 1931—34 var hann settur fræðslumálastjóri meðan Ás- geir Ásgeirsson var ráðherra og síðar tvívegis, hvort skiptið um nokkurra mánaða skeið. Annars hefur hann jafnan verið skrifstofustjóri og fulltrúi fræðslumálastjóra, og hefur alls starfað í fræðslumálaskrifstofunni á 14. ár. Það er auðsætt af því, sem hér hefur verið sagt, að meginstarf Helga Elíassonar, það sem af er ævinni, hefur ekki verið kennslustarf, enda þótt hann hefði verið ágæt- lega til þess fallinn, bæði vegna menntunar sinnar og meðfæddra hæfileika. En dr. Niemann hefur eigi að síður orðið sannspár um það, að hann mundi vinna mikilvægt starf í þágu íslenzkra skóla. Á þessum árum, sem hann hefur starfað sem fræðslu- málastjóri eða skrifstofustjóri og fulltrúi, hefur hann fengið víðtækari og að ýmsu leyti nánari kynni af íslenzk- um skólum og skólamönnum en sennilega nokkur annar maður á landinu. Það er og líklegt, að enginn ólöglærður maður standi honum á sporði um þekkingu á skólalög- gjöf landsins. Er hann svo næmur og stálminnugur á hið helzta í löggjöf þessari, að furðu sætir, og er það honum tiltækt, hvenær sem á þarf að halda. Staða hans gerir honum unnt að vera í órofnu sambandi við skólastarfið um allt land, sérstaklega þó í barnaskólunum, og áhugi hans og löngun til þess að fylgjast með því og fræðast um það dottar aldrei á verðinum. Allt þetta ásamt fjöl- þættri kennaramenntun og skjótri og skarpri hugsun gerir honum kleift að greiða fljótt og vel úr vandamálum og leggja mönnum haldkvæmt lið. Er hann venjulega glögg- ur með afbrigðum og skjótur til úrlausnar um skipulags-

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.