Menntamál - 01.03.1944, Blaðsíða 18

Menntamál - 01.03.1944, Blaðsíða 18
64 MENNTAMÁL fram, þótt þess ætti ekki að þurfa, að bílferðir geta ekki komið í stað heimavistar frá uppeldislegu sjónarmiði, ef vel tekst til um heimavistina, en frá sama sjónarmiði er ekki heldur meiri þörf á heimavistarskólum fyrir sveita- börn en hin, sem alast upp í þorpum og bæjum. Tvö skólahverfi hafa þegar fengið skólabíl. Síðastliðið haust keyptu tvö skólahverfi bíla til að flytja á skólabörn, og eru það fyrstu skólabílarnir. Hafa hinir framtakssömu forráðamenn þessara skólahverfa þar með stigið spor, sem markað getur tímamót í skóla- og félags- málasögu sveitanna. Skólahverfi þessi eru Ölfusskóla- hverfi í Árnessýslu og Vatnsleysuströnd í Gullbringusýslu. Hagar ágætlega til á Vatnsleysuströnd, þar sem sveitin er mjó og löng með einum aðalvegi og stutt af honum heim á hvern bæ. Þar er nú kennt á einum stað, en var á þremur áður og þó víða alllöng leið í skóla. Njóta nú öll börn þar jafnlangrar skólakennslu, en börn frá af- skekktari bæjum voru mjög afskipt áður. — Aftur á móti hagar ekki sérlega vel til fyrir skólabíl í Ölfusinu vegna þess, hve sveitin er breið og vikótt. Þar var áður heimavistarskóli, og kostnaður við heimavistina minni en víða annars staðar vegna jarðhita, en hins vegar hagaði þar ekki vel til fyrir hana að því leyti, að skólinn er í allstóru þorpi, Hveragerði. Sækja nú öll börn skólann á hverjum degi, hvort sem þau búa í sveitinni eða þorp- inu. Kennsluvikur á barn eru þriðjungi fleiri en áður, þótt skólinn starfi jafnmargar kennsluvikur. Skólabíl ölfusinga er ekið í ákvæðisvinnu, en á Vatns- leysuströnd ekur annar kennari skólans bílnum. Skólabíll Ölfusinga er tuttugu og tveggja manna langferðabíll, upp- hitaður og í góðu lagi. Fer því vel um börnin á leiðinni, eins og vera ber. Á Vatnsleysuströnd er skólabíllinn

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.