Menntamál - 01.03.1944, Blaðsíða 31
MENNTAMÁL
77
Námskeið námsflokkanna
Ágúst Sigurðsson, cand. mag., eftirlitsmaður náms-
flokka, hefur látið Menntamálum í té eftirfarandi upp-
lýsingar um námskeið, er haldið verður fyrir forgöngu
'hans í háskólanum n.k. vor. Námskeið þetta ber nafnið
„Námskeið námsflokkanna" og er fyrst og fremst ætlað
mönnum, sem hafa hug á að gerast forgöngumenn um
námsflokkastarfsemi eða félagsstarfsemi heima í héraði
sínu, en vitanlega getur það fleiri mönnum að gagni
komið.
Námskeiðið verður haldið í Háskóla Islands dagana 15.
maí til 1. júní n.k. Er það undirbúið í samráði við fræðslu-
málaskrifstofuna. Kennslan verður með námsflokkasniði.
í hverri námsgrein verða haldnir fáeinir fyrirlestrar og
síðan hafðar æfingar og samtalstímar um námsefnið.
Þessar námsgreinar verða stundaðar:
Lestur bókmennta. Kennari: dr. phil. Steingrímur Þor-
steinsson.
Leikstarfsemi (leiðbeiningar um leikstjórn). Kennari:
Lárus Pálsson, leikari.
Félagsstarf. Leiðbeinendur: Þorsteinn Einarsson,
íþróttafulltrúi og Ágúst Sigurðsson, cand. mag.
íslenzka. Kennari: Sveinbjörn Sigurjónsson, magister.
Þættir úr atvinnu- oc/ menningarsöqu íslands. Kennari:
Dr. phil. Þorkell Jóhannesson, landsbókavörður.
Hjálp í viðlögum. Rauði Kross Islands gengst fyrir
þessum þætti námskeiðsins.
Ennfremur mun dr. phil. Guðmundur Finnbogason
flytja erindi á námskeiðinu.
Ef þátttakendur óska ekki eftir að taka þátt í öllum