Menntamál - 01.03.1944, Blaðsíða 16

Menntamál - 01.03.1944, Blaðsíða 16
62 MENNTAMÁL eftir atvikum. Sums staðar mætti og vafalaust fá menn til að annast skólaferðirnar í ákvæðisvinnu. Nú er þess einnig að gæta, að bíllinn mundi lækka reksturskostnað skólanna á öðrum sviðum. Heildai'kostn- aður yrði víðast hvar engu hærri vegna bílsins, ef hann yrði það þá nokkurs staðar, en sums staðar mundi kostn- aður lækka til mikilla muna. Sameining litlu skólanna mundi stórum lækka reksturskostnaðinn, eins og áður er vikið að og liggur í augum uppi. Heimavistarskóli er og mun dýrari í rekstri en álíka stór heimangönguskóli. Heimavistin þarf vitanlega sitt starfsfólk, og vegna þess, að daglegur vinnutími kennara er þar lengri, fá þeir að sjálfsögðu meira kaup. Það, sem hér sparaðist í reksturs- kostnaði, kæmi báðum til góða, hreppssjóði og ríkissjóði. Stæði ríkið sig því vel við að greiða einhvern hluta af reksturskostnaði bílsins. Virðist þá heppilegt að miða þær greiðslur að öðru jöfnu við vegalengdir, kílómetra, sem bíllinn þyrfti að fara vegna nemendaflutninga. Auka- ferðum yrði ekki ruglað saman við skólakostnaðinn, og hreppsbúar nytu hagsýni sinnar við rekstur bílsins. Skólabörn fengju að sjálfsögðu ókeypis far í skóla og úr. Mundu þó margir foreldrar ekki telja eftir að greiða eitthvað fyrir það, a. m. k. fyrst í stað. Aukafarþegum yrði aftur á móti að selja farið sanngjörnu verði. Létti það nokkuð kostnaðinn. Aukaferðir vegna mannfunda og annarra félagslegra þarfa mundu víða gefa góðan hagnað, þótt þær væru seldar með sanngjörnu verði. Þá er ekki óliklegt að hafa mætti talsvert upp úr bílnum þann tíma, sem skólinn starfar ekki, og ætti þá skólabílstjórinn að sitja fyrir þeirri vinnu. Kostnaðurinn verður ekki þrándur í götu skólabílanna, heldur vetrarsnjór, vegleysur og staðhættir. Það er ekki heldur meining mín, að heimangönguskóli, sem hefði bíl til afnota, gæti alls staðar komið í stað heimavistarskóla, þótt hann gæti það sums staðar. Rétt er og að taka það

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.