Menntamál - 01.03.1944, Page 6

Menntamál - 01.03.1944, Page 6
52 MENNTAMÁL mál skóla og fyrirkomulag. Er enginn efi á því, að í starfi því, sem hann hefur nú gegnt um nálega hálfan annan áratug, hefur hann haft aðstöðu til þess að vinna skóla- málum landsins fleira og meira til framdráttar og bóta en unnt hefði verið fyrir hann sem skólastjóra eða kenn- ara. Þetta kann þó ef til vill ekki að liggja mönnum í augum uppi, því að margt af því, sem Helgi hefur lagt vinnu í og hrundið áleiðis, er þann veg vaxið og gert, að lítið ber á því. Eigi að síður mun það sanni næst, að hann eigi með einum eða öðrum hætti sinn þátt í fram- kvæmdum og upptöku margra þeirra umbóta og lagfær- inga, sem orðið hafa á sviði skólamálanna, sérstaklega þó barnaskólamálanna, hinn síðasta áratug. Er og ekki ofmælt að segja, að hann sé sí og æ á verði um það, að fá unnið skólamálum landsins eitthvert gagn. Þeir munu og færri í flokki skólamanna, að minnsta kosti meðal barnakennara, sem Helgi hefur ekki veitt nokkurn at- beina eða gert greiða með einhverjum hætti, því að hann er allra manna greiðasamastur og viðbragðsskjótastur til liðveizlu, hvar sem hann má hönd til rétta. Er því ekki að undra, þótt hann sé frábærlega vinsæll og njóti trausts fræðslumálastjórnar og kennara. Ber það meðal annars vott um traust fræðslumálastjórnarinnar, að hann var skipaður í milliþinganefnd í skólamálum, enda er hann ómissandi maður þar. Þess hefur verið getið hér að framan, hversu unglegur Helgi sé, enda þótt fimmti áratugur hans sé nú hafinn. Vantar þó ekki, að hann hafi unnið sleitulaust um dag- ana. Er þar skemmst af að segja, að hann er með af- brigðum ósérhlífinn og mesta hamhleypa til allra verka, hvort sem um skrifstofustörf, embættisferðalög eða önnur störf er að ræða, svo sem smíðar og húsamálun. Hann hefur það nefnilega til, ef tómstund gefst, að smiða sitt- hvað heima fyrir, breyta herbergjaskipun, færa til veggi og dyr ög mála allt sjálfur í hólf og gólf. Er dugnaður-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.