Menntamál - 01.03.1944, Síða 9
MENNTAMÁL
55
heimangönguskóli með viðleguskilyrðum. Vegna heima-
vistarinnar getur hann verið stórum áhrifameiri menn-
ingarstofnun en aðrir skólar. En búa verður þá svo að
heimavistinni, að skólinn sé því verki vaxinn. En hvað
sem því líður eru heimavistarskólarnir fyrst og fremst
stofnaðir og reknir vegna þess, að nemendurnir geta ekki
gengið daglega í skólann heiman að, enda eru flestir
heimavistarskólar jafnframt heimangönguskólar að meira
eða minna leyti. Þessi tvískipting nemenda er óhagkvæm,
bæði frá félagslegu sjónarmiði og fyrir skólastarfið. Nota
börn að vísu heimavistina sums staðar, þótt þau gætu
gengið heim, en hitt er þó almennara, að þau börn, sem
það geta, geri það, og leggja stundum heimfús börn
meira á sig við heimangöngur þessar en heppilegt er
vegna námsins.
í farskólahéruðum ganga börn einatt býsna langar
leiðir og torsóttar í skólann. Verður víða ekki hjá því
komizt, og það þótt kennslustaðir séu fleiri en hagkvæmt
er vegna kennslunnar. Er ekki allténd hægt að setja skól-
ana þar, sem heppilegast væri fyrir heimangöngu, því
að engum er skylt að hýsa hann. Hefur og legið við að
leggja yrði niður kennslu í sumum farskólahverfum vegna
þess, að skólinn fengi hvergi inni. Veldur því sjaldnast
ógreiðvikni né húsnæðisvandræði, heldur fólksleysi, því
að vitanlega er talsverður átroðningur að skólanum í
einkahúsum og aukin vinna honum samfara, en þó sér-
staklega, ef taka þarf börn til viðlegu. Verður því oft
að láta börn ganga miklu lengri leið í skólann en for-
eldrar þeirra og forráðamenn skólans vildu.
Fastir heimangönguskólar eru í nokkrum sveitum og
hefur farið fjölgandi á seinni árum. Ber margt til þess.
Kennslutími er lengri á barn en í farskólum, og auðveld-
ara að láta húsnæðið hæfa þörfum kennslunnar. Skóla-
nefndir þurfa ekki árlega að standa í stríðu við að út-
vega skólunum húsnæði og auðveldara að fá lærða kenn-