Menntamál - 01.03.1944, Síða 22
68
MENNTAMÁL
af spariskildingum sínum, eftir því sem efni leyfa, og
safna fé og fjármunum meðal frænda og vina. Þau vinna
einnig ýmsa muni ýmist heima eða í skólanum, sem annað
hvort verða seldir eða renna í fatasöfnunina.
Einnig verður tekið á móti loforðum um mánaðarlegan
styrk til ákveðinna barna í Noregi. Þeim styrk er hægt
að koma áleiðis strax fyrir væntanlega milligöngu sænskr-
ar hjályarstarfsemi. Er það gert með samþykki þýzkra
yfirvalda, en bundið því skilyrði, að styrkurinn sé veitt-
ur ákveðnu norsku barni og sé ekki hærri en 80 krónur
á mánuði. Svíar í Noregi munu útvega nöfn slíkra fóstur-
barna.
Forstöðumenn barnaskólanna sjá um söfnun hver í sínu
skólahverfi, en framkvæmdanefnd S. í. B. hefur yfirum-
sjón og annast úthlutun. Fræðslumálastjóri hefur sýnt
máli þessu þá vinsemd, að lofa aðstoð fræðslumálaskrif-
stofunnar við söfnunina úti um land. Skrifstofan mun
einnig hafa á hendi aðalbókhald og fjárgeymslu.
Fé því, er safnast, verður varið að nokkru leyti til
kaupa á vörum, er hentugar þykja (t. d. lýsi og barna-
fatnaði), og þær síðan sendar börnum í nágrannalöndum,
eftir því sem leiðir opnast. Miklar líkur eru til þess, að
hægt verði áð senda vörur til Noregs í næsta mánuði með
aðstoð íslenzkra og sænskra yfirvalda. Þá verður og
sennilega varið nokkru fé til þess að greiða mánaðar-
styrki, eins og fyrr var greint.
Óvíst er, hvernig hjálp verður komið áleiðis, fram yfir
það, sem nú hefur sagt verið. Framkvæmdanefndin stend-
ur í sambandi við íslenzk yfirvöld og fulltrúa erlendra
ríkja hér á landi um það mál og hefur fengið beztu undir-
tektir um fyrirgreiðslu.
í nafni Sambands íslenzkra barnakennara heitum við
undirritaðir því á foreldra og vini íslenzkra skólabarna
að bregðast nú fljótt og vel við þessari málaleitun, svo
að söfnun þessi megi verða að liði, ekki sízt þar sem vissa