Menntamál - 01.03.1944, Side 27

Menntamál - 01.03.1944, Side 27
MENNTAMÁL 73 ekkert eftir, þótt talað sé í návist þess, það talar ekki sjálft, það byrjar að nota bendingar til að láta í ljós óskir sínar og þarfir, og oft er göngulag þess þunglama- legt, og það hálfdregur fæturna. Það er sjaldnast hægt að segja um það með fullri vissu, hvort barn sé heyrnarlaust, fyrr en það er 3—4 ára gamalt. Þegar foreldrar og vandamenn hafa fengið fulla vissu um þetta böl barnsins síns, breytist viðhorf þeirra til þess og oft ekki til bóta fyrir barnið. Foreldrarnir vilja þá gera allt, sem í þeirra valdi stendur, til að gera barn- inu lífið sem þægilegast og bæta því upp það, sem það fer á mis við sökum heyrnarleysisins, og kemur þetta, því miður, oft fram í því, að þeir reyna eftir megni að uppfylla allar óskir barnsins, og áður en þeir vita af, er litli heyrnarleysinginn orðinn furðu vægðarlaus harð- stjóri. Þegar það er vitað með vissu, að barn sé heyrnar- laust, er ekki hægt að gera neitt betra fyrir það en að koma því á málleysingjastofnun, þar sem því er kennt að tala að svo miklu leyti, sem það er mögulegt, og getur það þá orðið nýtur þjóðfélagsborgari þrátt fyrir heyrnar- leysi sitt. Það nám, sem bíður heyrnarlausu barnanna, er bæði langt og erfitt, og þau verða óhjákvæmilega að leggja á sig meiri og harðari andlega vinnu en menn geta yfirleitt gert sér hugmynd um, og sjaldnast verður árangurinn svo mikill, að heyrnarleysið setji ekki merki sitt á sálarlíf þeirra alla æfi. Því fyrr, sem hægt er að byrja að kenna heyrnarlaus- um börnum, því betra. Nú orðið er alls staðar reynt að kenna þeim að tala, þótt þau heyri ekki sitt eigið mál, en til þess eru bæði heyrnarlaus og heyrandi börn hæf- ust á aldrinum 2—7 ára. Það geta fáir gert sér grein fyrir þeirri byrði, sem heyrnarleysingjarnir verða að bera, oft jafnvel ekki kennarar þeirra og foreldrar. Það er því fullkomlega

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.