Menntamál - 01.12.1961, Síða 124
310
MENNTAMÁL
leggja áherzlu á rétt og lýtalaust mál, heldur einnig auð-
ugt mál, og mætti þá um leið stuðla að því, að nemendur
lærðu að beita algengum orðtökum tungunnar.
Semja þyrfti handbók fyrir kennara til notkunar við
stílagerð, og væri æskilegt, að þar yrði að finna — auk
stílfræðilegra leiðbeininga — sýnishorn ritgerða, gallaðra
og góðra ,og sýnt fram á, í hverju gallar þeirra eða kostir
væru fólgnir. Enn fremur þyrfti að bera þar saman mis-
munandi stíltegundir og gera grein fyrir mismuni þeirra.
Aðalfundur Kennarafélags Eyjafjarðar.
Laugardaginn 30. sept. s.l. var haldinn aðalfundur Kennarafélags
Eyjafjarðar á Akureyri. Formaður félagsins, Hannes J. Magnússon,
skýrði frá, að félagið ætti 30 ára afmæli þann 4. okt. n.k. og rakti í
stórum dráttum sögu ]>ess. Fyrsti formaður þess var Snorri Sigfússon.
Félagið hefur gengizt fyrir mörgum námskeðium fyrir kennara á fé-
lagssvæðinu, og hafa þau oft verið fjölsótt. Þá hefur ]>að gefið lit
Vinnubók í átthagafraði og byrjendabók í reikningi Leikið og reikn-
að og uppeldismálaritið Heimili og skóla í 20 ár um næstu áramót.
Fimm kennarar gengu í félagið á fundinum.
Stjórn félagsins var endurkjörin, en hana skipa Hannes J. Magnús-
son formaður, Eiríkur Sigurðsson, ritari, og Páll Gunnarsson, fé-
liirðir.
Auk venjulegra félagsstarfa fluttu eftirtaldir rnenn erindi á fund-
inum: Stefán Jónsson, námsstjóri, um skólamál, Gerda Brunskog um
byrjunarkennslu yngri barna, Sigríður Skaftadóttir um norræna
kennaramótið og námskeið í sambandi við það, Gísli Jónsson,
menntaskólakennari, uin íslenzkukennslu, Guðjón Jónsson um spari-
fjársöfnun skólabarna, og sýndi hann einnig kvikmynd unt það
efni, og Jóhann Sigvaldason sýndi litskuggamyndir af kennaraþing-
inu og kennaranámskeiði í Danmörku.
Eftirfarandi ályktanir voru sarhþykktar á fundinum: