Menntamál


Menntamál - 01.06.1970, Qupperneq 4

Menntamál - 01.06.1970, Qupperneq 4
X, Hart r I bak Að undanförnu hefur síaukin áherzla verið lögð á viðhalds- og endurmenntun starfandi kennara, sem glöggt má marka af því, að árið 1969 sóttu 48% fastra kennara á barna- og framhaldsskólastigi lengri eða styttri nám- skeið í einhverri kennslugrein. Allir virðast á einu máli um gildi þessarar starfsemi og brýna nauðsyn þess að auka hana og samræma enn betur kröfunum, sem gerðar eru til skólanna, um breytt námsefni og kennsluhætti. Það væri því sannarlega illa farið, ef þessa starfsemi bæri nú upp á sker, eins og allar horfur eru á. Ágreiningur er risinn milli kennaranna og yfirvalda þeirra um það, hver skuli greiða kostnaðinn af endurmenntuninni. Það mun vera algild regla, að viðhalds- og endurmennt- un starfsmanna sé kostuð af vinnuveitendum og hún fari fram í vinnutíma. Kennarar telja það ósanngjarnt, að þeir — einir allra starfshópa í þjóðfélaginu — skuli þurfa að fórna frítíma sínum og sumir hverjir bæta þar á ofan ferða- og dvalarkostnaði, svo að unnt sé að taka upþ nýjungar í kennslu- háttum. Kennarasamtökin hafa fyrir löngu komið sjónarmiðum sínum á framfæri við rétta aðila, en svör hafa engin borizt. Svo er að sjá sem stjórnvöld séu staðráðin í að misnota hinn almenna vilja kennara til að auka þekkingu sína og starfshæfni til þess að ræna þá smám saman hluta af sumarleyfinu, sem flestir verða raunar að nota til að afla sér aukatekna og drýgja með því hin lágu laun. Langlundargeð íslenzkra kennara er að vísu mikið, en það er ekki þrotlaust. Og þess ættu stjórnvöld að minnast, að svo lengi má brýna deigt járn, að það bíti. MENNTAMÁL 86

x

Menntamál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.