Menntamál - 01.06.1970, Qupperneq 8
kennslugreinar nema föndur og annað hvort 'íónlist eða
leikfimi.
c) Högstadiet. Á þessu stigi á kennari að geta kennt
þrjár greinar. Þrjú ár eru ætluð til hins íaglega náms,
sem íer fram í háskóla (universitet), en nátengdur hon-
um er kennaraháskólinn, sem annast hinn uppeldis- og
kennslufræðilega þátt menntunarinnar, þ. á m. verklega
þjálfun (henni er ætlaður tæpur fimmtungur námstím-
ans). Rík áherzla er lögð á, að náin samvinna iakist
milli háskóla og kennaraháskóla: sérstakar stofnanir —
námsefnis- og kennaramenntunarnefndir — eiga að
tryggja sem bezta samræmingu milli skólanna.
Þó að háskólarnir sjái einkum um vagmenntun
unglinga- og menntaskólakennara, er gert ráð íyrir, að
barnaskólakennarar sæki þangað nokkurn hluta íag-
menntunar sinnar. En kennsla í uppeldisgreinum og
verkleg þjálfun fer fram að öllu leyti innan kennara-
háskólanna, enda verður kennaraprófi ekki lokið nema
menn sæki þá.
Núgildandi lög gera ráð fyrir því, að komið verði
á föstu kerfi viðbótarnáms, er geri kennurum íært að
flytjast milli skólastiga, ef þeir óska. Að lokinni þriggja
ára kennslu getur kennari yngri deilda öðlast kennslu-
réttindi við eldri deildir með því að bæta við sig eins
árs námi í helztu kennslugreinum; eins getur kennari
eldri deilda færzt upp á ungiingastig eftir þriggja ára
starfsreynslu með 11/2 árs viðbótarnámi í þremur
kennslugreinum. Svipuð iilfærsla er möguleg milli
unglinga- og menntaskólastigs.
Kennaramenntun í Þýzkalandi (Hessen)
Þar sem V.-Þýzkaland er oambandslýðveldi, er :;kóla-
löggjöfin og þar með kennaramenntunin nokkuð mis-
munandi eftir ríkisfylkjum. í flestum ríkisfylkjum eru
kennaraefnin búin undir að kenna allar greinar bæði í
yngri og eldri deildum barnastigs (Grundschule, Haupt-
schule, 6—15 ára börn á 1.—9. skólaári). í Hessen
fá barnakennarar, sem sérhæfa sig í einni grein, rétt
til að kenna hana í 10. bekk (í gagnfræða- oða mennta-
skóla). í öðrum fylkjum geta kennarar, sem starfa á
skyldunámsstigi, aflað sér kennsluréttinda til loka gagn-
fræðanáms með því að sækja námskeið, að afloknum
síðari hluta embættisprófs (sjá bls. 91).
Inntökuskilyrði. Krafizt er stúdentsprófs, enda fer öll
kennaramenntun íram á háskólastigi — í kennaraháskól-
um, almennum háskólum eða tækniháskólum.
Námstími. Hið eiginlega kennaranám tekur 3 ár eða
6 semester, en þar við bætist reynslutími, sjá síðar.
Námsefni og skipulag. Námsefni er skipað svo sem
hér segir:
a) Uppeldisgreinar.
b) Aðrar greinar (Fachstudium). Kennaraefnin verða
að velja sérstakar greinar til kennslu og sérhæf-
ingar, s.s. ensku, stærðfræði, sögu, kristinfræði.
c) Kennslufræði (Didaktisches otudium).
Þá stunda kennaranemar æfingakennslu á tveimur
skólastigum í samtals 10 vikur, 4 vikna inngangsæf-
ingar (Einfuhrungsspraktikum) og 6 vikna aðalæfingar
(Hauptpraktikum).
Við lok þessa náms þreyta kennaraefnin fyrri hluta
embættisprófs. Þann, sem staðizt hefur prófið, má
lausráða í kennarastöðu. Hefst þá undirbúnings- eða
reynslutími, eigi skemmri en 2 ár,1) íyrir síðari hluta
embættisprófs. Á þessu tímabili, samfara kennslunni,
tekur kennarinn þátt í uppeldislegum námskeiðum
(Pádagogisches Studienseminar), og miðast þátttaka
hans við um 15 dagsverk á ári. Að þessum tveimur
reynsluárum liðnum er kennaraefninu heimilt að
gangast undir síðari hluta embættisprófs, er felur í sér
m.a. samningu ritgerðar og kennslupróf. Að því loknu
hefur hlutaðeigandi öðlast full kennsluréttindi.
Kennaramenntun í Bandaríkjunum
Skipulag kennaramenntunar í Bandaríkiunum er
breytilegt eftir einstökum rikisfylkjum og skólum; al-
menn lýsing hefur því takmarkað gildi. Enn eru víða
starfandi Teacher Colleges, en stefnt er að því að færa
allt kennaranám inn í háskóla. En verulegur munur er
á skipulagi og námskröfum eftir háskólum.
Inntökuskilyrði. Kennaranám getur hafizt að loknu
12 ára námi, þ.e. við 18 ára aldur.
Námstími er yfirleitt 4—6 ár og lýkur með venjuleg-
um háskólaprófum, frá B.A. til doktorsprófs.
Námsefni og skipulag. Nokkur munur er gerður á
menntun kennara fyrir barnastig (primary), þar sem
miðað er við bekkjarkennslu, og hins vegar fyrir
secondary (12-—18 ára), sem miðast fremur við fag-
kennslu og útheimtir af kennurum sérhæfingu í ein-
stökum greinum. Ef tekið er dæmi af ríkisháskólanum í
New York, er skipanin i stórum dráttum sem hér segir:
Til þess að Ijúka almennu kennarapróli, sem veitir
réttindi á barnastigi, þarf nemandi að skila a.m.k. 120
annastundum (semester credits) íyrir B.A. eða B.Sc.-
próf. Skiptast þær eftir námssviðum á eftirfarandi hátt:
a) Almenn menntun (efna- og eðlisfræði, líffræði,
stærðfræði, félagsvísindi, bókmenntir og listir,
enska og erlend tungumál) samtals 55—73 anna-
stundir.
b) Sérsvið: 30 annastundir.
c) Uppeldisgreinar: 33 annastundir.
Þessi þrjú námssvið eru einnig uppistaðan í námi
þeirra, sem Ijúka kennaraprófi íyrir secondary. Munur-
1) Þessi reynslutími er mislangur eftir rikisfylkjum, allt frá einu
og upp í fjögur ár.
MENNTAMÁL
90