Menntamál - 01.06.1970, Blaðsíða 13

Menntamál - 01.06.1970, Blaðsíða 13
Ólafur S. Ólafsson, form. LSFK: Kennara- menntunin frá sjónarhóli L.S. F. K I meginatriSum ntanda íræðslulögin írá 1946 óbreytt. Það sýnir, að þau voru sniðin eftir fyllstu kröfum þeirra tíma og einnig það, að þeir, sem mótuðu þau og meitluðu, hafa verið glöggskyggnir á, í hvaða átt þró- unin í menntunar- og menningarmálum þjóðarinnar stefndi og æskilegt væri að hún færi. Löggjöfin setti einnig reglur um, hvernig unnt væri við þáverandi aðstæður að leysa vandkvæðin við fram- kvæmd hennar vegna skorts á hæfum kennurum. 37. grein í lögum um gagnfræðanám frá 1946 kveður á um þau skilyrði, sem fullnægja þarf til þess að vera skipaður kennari við gagnfræðastigið, og eru þau helztu sett þannig fram: a) að hafa almenna kennaramenntun eða stúdents- menntun að viðbættu námi í uppeldis- og kennslufræð- um, er fræðslumálastjórnin metur gilt. b) að hafa stundað eins til tveggja ára nám hið minnsta við háskóla i þeirri fræðigrein, sem ætlast er til að verði aðalkennslugrein hlutaðeiganda, enda sýni hann skilríki fyrir háskólanáminu. í lögum þessum er einnig ákvæði um, að kennarar frá K.í. hafi rétt til að annast kennslu á unglingastiginu, og kennarar í verklegum greinum eru undanþegnir framhaldsnámi. Um 90% allra kennara við gagnfræðastigið eru ým- ist ráðnir, settir eða skipaðir eftir þessum lagagrein- um, og má þess vegna segja, að þær hafi gert skóla- hald á gagnfræðastiginu mögulegt til þessa. í lögum frá 1947 um menntun kennara segir, að koma eigi á fót kennslustofnun í uppeldisvísindum, og rétt til setu í þeirri deild (háskóladeild) eigi allir, sem lok- ið hafa prófi frá K.í. eða hafi stúdentspróf. Þessu ákvæði um kennslustofnun í uppeldisvísindum, eins og hún var fyrirhuguð, hefur ekki verið framfylgt, og er það ein sönnun þess, að þróunin í menntunarmálum kennara hefur ekki orðið eins formföst og gildandi fræðslulög gera ráð fyrir. Hins vegar er hægt að fullyrða, að kennarar við framhaldsskólana hafa svarað kalli tímans um aukna menntun og starfshæfni og tekizt með viðbótarnámi eftir ýmsum leiðum og reynslu í starfi að afla sér viðurkenningar sem fullgildur starfskraftur. Hængurinn er á, að sú viðurkenning nær hvorki til launa né, í of mörgum tilvikum, til skipunar í starf. Nú mun um 55% starfandi kennara á gagnfræðastiginu ekki hafa fengið skipun í starf, þótt siðferðilegur réttur þeirra og í flestum atvikum löglegur til þess sé ótvíræður. LSFK hefur á undanförnum árum varað við þeirri þróun, sem átt hefur sér stað í þessum efnum og þeirri hættu, sem skapazt hefur við það, að mikill hluti kenn- ara á framhaldsskólastiginu býr ekki við það starfs- öryggi, sem nauðsynlegt verður að teljast, svo að skólakerfið bíði ekki hnekki af. Þeim viðvörunum hefur ekki verið sinnt sem skyldi. Fræðslulögin frá 1946 mörkuðu mikilvæg framfara- spor í fræðslu- og menningarmálum þjóðarinnar, og i MENNTAMÁL 95

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.