Menntamál - 01.06.1970, Qupperneq 29
Samtök íslenzkra
kennaranema endurvakin
Frá árinu 1948 hafa verið iil á
Norðurlöndum samtök norrænna
kennaranema.
Samtök þessi voru stofnuð af
landssamtökum kennaranema í
Svíþjóð, Danmörku og Noregi. Nor-
rænu samtökin vinna allmikið starf,
t.d. með námskeiðahaldi, rannsókn-
arstarfsemi og fundahöldum, þar
sem ýmis hagsmuna- og framfara-
mál kennaranema eru rædd og
skipzt á upplýsingum.
Á þessi námskeið, sem lands-
samböndin standa íyrir, hafa hin
landssamböndin í norrænu oamtök-
unum rétt til að senda ákveðinn
fjölda þátttakenda, óski þau eftir.
8. marz 1964 voru stofnuð Sam-
íök íslenzkra kennaranema (S.Í.K.).
Að stofnuninni stóðu nemendur
allra þeirra skóla, sem útskrifa
kennara fyrir skyldunámsstigið:
Húsmæðrakennaraskóla íslands,
íþróttakennaraskóla íslands, Kenn-
araskóla (slands, kennaradeildar
Myndlista- og handíðaskóla íslands
og söngkennaradeildar Tónlistar-
skólans í Reykjavík.
Hlutverk samtakanna var m.a. að
vinna að hagsmuna- og íramfara-
málum kennaranema og efla sam-
starf norrænna kennaranema. S.Í.K.
mun strax hafa gerzt aðili að Sam-
tökum norrænna kennaranema.
Starf S.Í.K. virðist hins vegar hafa
lagzt niður mjög fljótt.
í nóvember s.l. var samþykkt í
Nemendaráði K.í. að athuga mögu-
leika á endurreisn samtakanna.
Að þeirri athugun unnu aðallega
Þórður Guðmundsson 4. bekk
handavinnudeildar og Guðmundur
Guðmundsson 1. A.
Haft var samband við okólastjóra
og forsvarsmenn nemenda í þeim
5 skólum, sem voru stofnaðilar sam-
stakanna. 29. janúar s.l. boðaði
Nemendaráð iil fundar með íulltrú-
um úr þessum skólum, og oendu
allir fulltrúa nema íþróttakennara-
skólinn, sem ekki gat komið því við.
Á fundinum kom fram, að í hinum
skólunum var áhugi á því að endur-
reisa samtökin.
Frá stofnfundinum. Guömundur Guðmundsson í ræðustólnum.
MENNTAMÁL
111