Menntamál - 01.02.1976, Blaðsíða 11

Menntamál - 01.02.1976, Blaðsíða 11
HauitiA 1969 midad við haustið 1968: Skóli 3: 1 3. bekkur Nemendur samtals: 19 Skóli 3:2 4. bekkir Nemendur samtals: 45 Samtals 3 bekkir Nemendur alls: 64 Breytingar (viðbót) samtals yfir tveggja ára tímabil: 5 bekkir Nemendur alls: 118 Nú má ekki líta á þennan viðbótar nemenda- fjölda sem hreina viðbót við upprunalega nemenda- úrtakið vorið 1968 með tilliti til úrvinnslunnar þar sem nemendur frá vori 1968 og einnig úr hópi við- bótarnemenda „glötuðust" milli mælinga vegna veikinda eða fjarveru þann dag sem mælt var. Því er tilraunahópurinn og samanburðarhópur- inn milli ára (mælinga) minni en heildartala nem- enda sem svöruðu spurningaskrám. Ef tala nemenda ein er látin gilda er heildar- úrtakið (þ.e. fjöldi þeirra nemenda, sem svöruðu a.m.k. einu sinni spurningaskrá) þetta: Úrtak vorið 1968: Bekkir 33 Nemendur alls: 778 Viðbót 1968-69: Bekkir 5 Nemendur alls: 118 Bekkir alls: 38 (6 TB og 32 SB) Nemendur alls: 896 3. Staðsetning tónmenntartímans Gerðar voru ákveðnar kröfur um staðsetningu tónmenntartímans á stundatöflu tilraunabekkj- anna. „Söngur“ varð ófrávíkjanlega að vera kennslustund á venjulegum skólatíma nemenda og þá helst annar tíminn á stundaskrá. Þó var sam- þykkt að hafa söngtímann sem fyrsta eða síðasta tímann á stundaskrá ef ekki var hægt að koma því öðruvísi við. Tónmennt (söngur) var þvi alltaf í tengslum við eða inni í fastri stundaskrá nemenda tilraunabekkjanna en var ýmist svo eða ekki í sam- anburðarbekkjunum eftir því sem venjuleg stunda- skrá þeirra sagði til um. Krafan um að hafa tónmenntartímana hjá til- raunabekkjunum inni í eða við samfellda stunda- skrá nemenda er sprottin af þeirri tilgátu að viðhorf nemenda til greinar sem kennd er sem einangraður tími á öndverðum skólatíma hlyti, að öðru jöfnu, að vera neikvæðara en ef þessi kennslustund væri hluti af reglulegum starfstíma nemenda, m.ö.o. að meiri líkur væru þá á því að nemendur tækju tón- mennt alvarlega og viðurkenndu gildi hennar sem námsgreinar innan ramma hins daglega starfs. 4. Kennarar Gerðar voru þær kröfur að sami tónmenntar- kennari kenndi tilrauna- og samanburðarbekkjun- um allt tilraunatímabilið og stóðst það í raun. Einnig var vonast til þess að sem minnstar breyt- ingar yrðu á skipan bekkjarkennara við tilrauna- og samanburðarbekkina yfir tilraunatímabilið og stóðst það einnig í raun með einni undantekningu. 5. Kennsla í tilraunabekkjunum Tilraunin var í því fólgin að þessir 6 tilrauna- bekkir fengu 3 tónmenntar(söng)tíma á viku við þau skilyrði sem lýst er að ofan en samanburðar- bekkirnir fengu einn tíma á viku eins og venja er til. Yfirleitt var einn dagur á milli tónmenntartímanna hjá tilraunabekkjunum (þ.e. mánud., miðvikud. og föstud. eða þriðjud., fimmtud. og laugard.) en á þessu voru þó nokkrar undantekningar. Þessir þrír tímar voru samræmdir að nokkru með sér- stökum undirbúningi og samstarfi kennaranna eins og segir hér á eftir. Miðað við venjulegar aðstæður voru því ákjósan- leg skilyrði til tónmenntarkennslu í tilraunabekkj- unum. 6. Námsefnið Veturinn 1967-68 unnu þrírtónmenntarkennarar ásamt greinarhöfundi að því að útbúa námsefni fyrir tilraunabekkina. Námsefnið var í eðli sínu ekki frábrugðið hefð- bundnu námsefni í söng en áhersla var lögð á að hafa það eins fjölbreytilegt og frekast var unnt. Aðaláherslan var lögð á eftirfarandi: a) Safnað var töluverðum fjölda nýrra sönglaga og texta, sem ekki höfðu verið notuð fram til þessa við söngkennslu, og þetta efni fjölritað. b) Útbúnir voru hreyfingaleikir. c) Útbúið var efni til að þjálfa ýmsa músíkalska skynjunarþætti (heyrn og hryn) í sambandi við sönglögin. d) Teknar voru ákvarðanir um kennsluaðferðir og þær samræmdar milli kennara. Það verður að benda sérstaklega á að kennararnir sem unnu að útbúnaði námsefnisins voru hinir sömu sem tóku að sér tilraunakennsluna allt tíma- bilið. Þar sem námsefnið var tiltölulega fjölbreytt, miðað við það sem áður var fyrir hendi, má vænta þess að tilraunakennarar hafi einnig notað það að einhverju leyti í samanburðarbekkjunum sem fengu MENNTAMÁL 11

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.