Menntamál - 01.02.1976, Blaðsíða 29
4. Almennar upplýsingar um mat kennarans á
bekknum með tilliti til námsins.
5. Upplýsingar um viðhorf kennarans til ýmissa
þátta kennaramenntunar.
Þar sem það yrði allt of langt mál hér að gera
grein fyrir svörum kennara við öllum spurningun-
úm, voru valdar úr 24 spurningar sem þóttu áhuga-
verðar í sambandi við tilraunina og bakgrunns-
rannsóknina (Tafla 1). Þessum 24 spurningum má
skipta í 5 flokka:
A. Almennar spurningar. (5)
B. Spurningar um sérgreinar. (7)
C. Spurningar um afstöðu nemenda til sér-
greina. (3)
D. Spurningar um tónmennt (söng). (4)
E. Spurningar um kennaramenntun. (5)
Þessi kennaraspurningaskrá er birt í viðbæti með
öðrum spurningaskrám. Svörin við þessum 24
spurningum eru sett upp í töfluformi hér á eftir
(Tafla 1). í fremsta dálki er númer spurningarinnar
sem höfðar til listans í viðbætinum. í öðrum dálki
er lykilorð að spurningunni, þ.e. megininntak
spurningarinnar. í þriðja dálki eru svör kennar-
anna, þ.e. tala þeirra sem svara á einn veg eða
annan. Talan í svigum höfðar til bekkjakennara
tilraunabekkjanna, en þeir voru alls 6. í síðasta
dálki er fjöldi kennaranna sem svöruðu spurning-
unum.
TAFLA 1: Kennaraspurningaskrá 1968 (29 bekkjakennarar)
A. Almennar spurningar.
1. Nemendur móttækilegri fyrri eða seinni hluta kennslust. ? 29 sv. „fyrri hluta“ 29
2. Nem. móttækilegri. fyrri eða seinni hluta kennsludags? 29 sv. „fyrri hluta“ 29
3. Hafa hreyfingaleikir o.s.frv. truflandi eða uppörvandi áhrif? 28(6) sv. uppörvandi, 1(0) sv. truflandi 29
4. Farið í leiki með bekknum? 27(6) sv. já, 1(0) sv. nei 28
5. Áhugi á tónlist? 18(3) sv. já, 9(3) sv. nei 27
MENNTAMÁL
29