Menntamál - 01.02.1976, Blaðsíða 44
SPURNINGASKRÁ (Nr. 6)
(Gjörið svo vel að setja kross (X) í viðeigandi reit)
1. Látið þér nemendur yðar stundum syngja lag í tímum ?
a) öðru hverju □
b) sjaldan □
c) aldrei □
2. Álítið þér, að tónlist (söngur), sem fléttað væri inn í almennu kennsluna, hefði:
a) truflandi áhrif? □
b) uppörvandi áhrif? □
c) myndi engu breyta ? □
3. Finnst yður afstaða bekkjarins í heild vera fremur
a) jákvæð gagnvart tónlist (söng)? □
b) neikvæð gagnvart tónlist (söng) ? □
c) hvorki jákvæð né neikvæð (hlutlaus) ? □
4. Álítið þér, að áhugi bekkjarins á tónlist (söng), hafi:
a) aukist i vetur ? □
b) minnkað í vetur ? □
c) staðið í stað ? □
5. Ef sérgreinin tónlist (söngur) var felld inn í (eða við) samfellda stundaskrá í yðar bekk, sáust þá
einhver merki þess, að bekkurinn hlakkaði til þessa tíma í næsta tíma á undan? Já □ Nei □
6. Fannst yður bekkurinn koma fremur
a) ánægður og hress í næsta tíma á eftir? □
b) órór og leiður í næsta tíma á eftir ? □
7. í næsta tíma á eftir tónlistar(söng)tímanum, fannst yður bekkurinn
a) taka betur við námsefninu, þ.e. vinna af meiri einbeitni og eftirtekt? □
b) taka verr við námsefninu, þ.e. vinna af minni einbeitni og eftirtekt? □
8. Álítið þér, að það hefði hjálpað yður í starfi yðar sem bekkjarkennari, ef þér hefðuð hlotið stað-
góða þekkingu í tónlist (söng) og tónlistaruppeldi í Kennaraháskóla íslands, meðan þér voruð við
nám þar? Já □ Nei □
9. Hvernig finnst yður einbeitni og eftirtekt hafa breyst í bekknum miðað við byrjun skólaársins?
a) orðið framför? □
b) orðið afturför? □
c) staðið í stað? □
10. í hvaða grein(um) finnst yður bekkurinn hafa tekið mestum framförum í vetur?
a) í lestri □
b) í skrift □
c) í reikningi □
d) í annarri grein (hverri)? _________________________________________________________________
11. Álítið þér, að jákvæður árangur tónlistarkennslu (söngkennslu) myndi aukast, ef tónlistartímum
(söngtímum) væri íjölgað úr einni kennslustund á viku í tvær á barnaskólastiginu ? (Athugið, að
hér er ekki einungis átt við árangur í námsgreininni tónlist, heldur einnig við jákvæð áhrif þessarar
greinar á aðrar greinar og á félagslegan þroska nemenda) Já □ Nei □
12. Ef þér hafið einhverja gagnrýni eða tillögu fram að færa í sambandi við námsefni tónlistarkennslu
(söngkennslu) og framkvæmd hennar á barnaskólastigi, gjörið svo vel að gera grein fyrir því hér.
13. Hafið þér orðið var (vör) við framfarir í einhverjum eftirfarandi atriða í bekk yðar, sem yður þykja
óvenjumiklar miðað við það sem þér hefðuð búist við?
a) í framburði Já □ Nei □
MENNTAMÁL
44