Menntamál - 01.02.1976, Blaðsíða 38
það upp að vera lengur í skólanum en jafnaldra
félagarnir sem fá frí á meðan. Nemendur tilrauna-
bekkjanna gætu því litið á þessa aukalegu söng-
tíma sem refsingu.
Ef töflu 5 er skipt niður eftir kynferði kemur alls
staðar í ljós sá marktæki munur sem getið var um
hér að framan (við 1% mörkin). Tafla 6 sýnir þenn-
an mun, bæði fyéir tilrauna- og samanburðarbekk-
ina (eingöngu nei-atkvæðin í % sýnd).
TAFLA 6: Samanburður á viðhorfum ncmenda til söngs eftir kynferði Yngri hópur (8 og 9 ára)
M1 8 ára Tilraun Samanb. Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur 26.9 13.3 31.3 10.6 M2 9 ára Tilraun Samanb. Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur 53.9 3.7 43.1 16.6 M3 9 ára Tilraun Samanb. Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur 60.0 29.2 38.0 20.6
Eldri hópur (9 og 10 ára)
M1 9 ára Tilraun Samanb. Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur 58.6 18.4 45.2 12.3 M2 10 ára Tilraun Samanb. Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur 69.4 22.2 58.3 8.3 M3 10 ára Tilraun Samanb. Piltar Stúlkur Piltar Stúlkur 77.5 35.0 52.2 16.2
Nei-atkvæði piltanna eru í öllum tilfellum hærri
en nei-atkvæði stúlknanna. Þar að auki eru nei-
atkvæði samanburðarhópsins yfirleitt alltaf lægri
en nei-atkvæði tilraunahópsins. Þessi munur eykst
frá mælingu til mælingar og er mestur í síðustu
mælingu. T.d. í mælingu M3 yngra aldurshópsins
svara 60% pilta úr tilraunahópnum (29.2% stúlkna)
með nei, en aðeins 38% pilta (20.6% stúlkna) svara
með nei í samanburðarhópnum. í mælingu M3
elðra aldurshópsins eru hlutföllin 77.5% (35%) á
móti 52.2% (16.2%).
Ef þessari þróun er fylgt eftir niður í einstaka
bekki einstakra skóla, kemur fram enn marglitari
mynd og enn athyglisverðari breytingar milli
mælinga.
Sveiflurnar milli mælinga eru reyndar einnig
fyrir hendi hjá samanburðarbekkjunum en ekki
eins áberandi og hjá tilraunabekkjunum, hvorki
hjá piltum né hjá stúlkum.
Hér eru 2 dæmi (nei-atkvæði í % gagnvart söng):
1)
Skóli 4 M1 9 ára M2 10 ára M3 10 ára
P S P S P S
Bekkur X (tilraun) 21.4 6.3 63.6 0.0 100.0 64.7
Samanb. hópur sama skóla 39.0 3.4 34.3 22.2 45.5 16.2
M.ö.o. nei-atkvæði pilta í tilraunabekknum
fimmfaldast milli tveggja skólaára (frá M1-M3),
frá 21.4% til 100%, og nei-atkvæði stúlkna tífaldast,
frá 6.3% til 64.7%! í samanburðarhópnum er um
mun minni sveiflur að ræða.
MENNTAMÁL
38