Menntamál - 01.02.1976, Blaðsíða 27
9. eining: Viðhorf árganga í öllum skólum saman-
lagt
Mynd 9 sýnir það sama og mynd 8, nema hér eru
sýnd viðhorf nemenda í öllum skólum samanlagt
yfir 3 ár. Einnig hér sker átthagafræði sig úr í 3.
bekk (1970).
10. eining: Frávik einstakra skóla frá meðalgildi
Myndir 10A, 10B og 10C sýna frávik einstakra
skóla frá meðalgildi viðhorfa allra skólanna saman-
lagt í 2., 3. og 4. bekk (1968-70). Skóli 4 er helst
frábrugðinn hinum skólunum og meðalgildi skól-
anna í því að viðhorf til reiknings er frekar nei-
kvætt miðað við hina skólana, en viðhorf til lesturs
frekar jákvætt (yfir öll árin). í þessum skóla var
námsefni Agnete Bundgaard kennt í stærðfræði/
reikningi og er í sjálfu sér athyglisvert að viðhorf
nemenda skuli vera tiltölulega neikvæðara til þess-
arar greinar (a.m.k. fyrstu 2 árin). Hins vegar
bendir jákvætt viðhorf nemenda gagnvart lestri til
þess að sérstök lestrarkennsluaðferð sem notuð var
í þessum skóla hafi verið mjög jákvæð og árangurs-
rík (dæmi um jákvæð áhrif kennsluframboðs og
kennsluaðferða).
Áberandi jákvætt viðhorf til leikfimi í skóla 4
árið 1970 miðað við hina skólana skýrist e.t.v.
með því að árið 1969 var engin leikfimi kennd í
3. bekkjum þess skóla og því er leikfimi ný grein
1970 sem virðist verða vinsæl á kostnað annarra
greina, þ.á.m. tónmenntar sem hafði verið töluvert
vinsæl grein árið áður. Eins og áður hefur komið
fram er áberandi hversu teikning er vinsæl grein
í skóla 3 árið 1970 miðað við hina skólana og má
helst heimfæra þennan mun á lífrænar kennslu-
aðferðir í teikningu í þessum skóla.
Kennaraspurningaskrár
Vorið 1968, áður en tilraunin með aukna tón-
menntarkennslu hófst, var lögð löng og ítarleg
spurningaskrá fyrir alla bekkjakennara hinna fjög-
urra skóla, bæði tilrauna- og samanburðarbekkja,
alls 29 kennara. 65 spurningar voru á listanum og
fjölluðu þær aðallega um sérgreinarnar en einnig
um ýmsa aðra þætti. Spurningarnar mætti flokka
á eftirfarandi hátt:
1. Ýmsar upplýsingar um kennarann.
2. Upplýsingar um kennarann með tilliti til áhuga
og viðhorfa hans á sérgreinum.
3. Upplýsingar um mat kennarans á áhuga og
viðhorfum nemenda til ýmissa sérgreina.
MENNTAMÁL
27