Menntamál - 01.02.1976, Blaðsíða 40
stundaskrá sína en fá ekki að sleppa neinu í stað-
inn. Svo kann að vera að þeim hafi þótt þetta vera
refsing, meðan jafnaldrar þeirra fengu frí úr skól-
anum urðu þeir að vera í viðbótartónmenntar-
tímum.
2. Tónmennt (söngur) var ekki metin til prófs i
öllum skólunum eða a.m.k. ekki reiknuð til aðal-
einkunnar. Meðan skólar nota próf og einkunnir
sem ytri námshvata og ögunartæki, þ.e. skapa
meðvitað og ómeðvitað aðhald með einkunnagjöf,
þá setja nemendur grein sem ekki lýtur sömu lög-
málum skör lægra og viðurkenna hana e.t.v. ekki,
einmitt af þessum orsökum.
Með vissu má segja að sumum spurningum um
viðhorf nemenda til námsgreina hafi verið svarað,
en vafalaust er mörgum ósvarað enn. Því væri
mikil þörf á frekari rannsóknum á þessu sviði, sér-
staklega rannsóknum sem ná dýpra og gefa svör
við spurningum um félagslegar og sálfræðilegar
orsakir fyrir viðhorfamynstri nemenda til náms-
greina og skólahalds yfirleitt.
Þótt aðeins hluti af þeim tilgátum sem varpað
hefur verið fram hér til túlkunar á niðurstöðum
þessarar rannsóknar hafi við rök að styðjast,
hljóta þær samt sem áður að vekja menn til um-
hugsunar um eðli, gerð og tilgang skólahalds eins
og það er framkvæmt í dag.
Skólapólitískar afleiðingar slíkrar umhugsunar
gætu orðið þær að sú úttekt og þær breytingar á
námsgreinum skólans qg á ríkjandi kennsluháttum
sem nú er verið að vinna að verði til þess að skapa
inntakslegar og skipulagslegar breytingar sem færa
skólann nær lífinu og gera námsreynslu nemenda
forvitnilegri og tilgangsríkari og auka þar með við-
fangsgleði þeirra.
V. VIÐBÆTIR
Hér á eftir kemur yfirlit yfir þær spurningaskrár
sem lagðar voru fyrir nemendur og kennara í sam-
bandi við tónmenntartilraunina og almennu bak-
grunnsrannsóknina.
Alls eru þetta 6 spurningaskrár. I skrám Nr. i
og 2 er spurt um viðhorf nemenda til námsgreina
borið saman við aðrar námsgreinar (nefnt A-form
héraðframan). SkráNr. 1 varfyriryngrinemendur,
þ.e. upp að 3. bekk, en skrá Nr. 2 fyrir eldri nem-
endur, frá 4. bekk.
í skrám Nr. 3 og 4 er spurt um viðhorf nemenda
til námsgreina án samanburdar við aðrar náms-
greinar (nefnt B-form hér að framan). Skrá Nr. 3
var fyrir yngri nemendur en skrá Nr. 4 fyrir eldri
nemendur.
Skrár Nr. 5 og 6 eru kennaraspurningaskrár.
Skrá Nr. 5 var sú fyrri (vorið 1968) og er hér
einungis birt úrtak úr henni (24 af 65 spurningum).
Skrá Nr. 6 er seinni kennaraspurningaskráin (lögð
fyrir vorið 1969) og er hún birt hér í heild.
SPURNINGASKRÁ (NR. 1) Yngri nemendur
Hvort þykir þér meira gaman að: 15. föndri (handavinnu) — reikningi?
1. reikningi eða lestri ? 16. lesa bækur leika þér?
2. skrift leikfimi ? 17. leikfimi söng?
3. lestri föndri (handavinnu)? 18. lestri skrift?
4. átthagafræði reikningi ? 19. átthagafræði leikfimi?
5. söng hlusta á tónlist? 20. skrift föndri (handavinnu)?
6. leika þér horfa á sjónvarp? 21. söng reikningi?
7. föndri (handavinnu) — söng? 22. lesa bækur horfa á sjónvarp?
8. lestri átthagafræði? 23. leikfimi reikningi ?
9. reikningi skrift ? 24. horfa á sjónvarp — hlusta á tónlist?
10. átthagafræði föndri (handavinnu)? 25. föndri (handavinnu) — leikfimi?
11. hlusta á tónlist lesa bækur? 26. söng átthagafræði ?
12. átthagafræði skrift? 27. lestri lesa bækur?
13. lestri leikfimi ? 28. hlusta á tónlist leika þér?
14. skrift söng? 29. söng lestri?
MENNTAMÁL
40