Menntamál - 01.02.1976, Side 20

Menntamál - 01.02.1976, Side 20
á fyrsta ári, en áhuginn á þessum greinum dvínar áberandi á 3. ári (nema í skrift), sbr. mynd 1B. Hins vegar fara vinsældir söngs hjá þessum bekk lækkandi ár frá ári (sbr. skýririguna í 7. einingu). Um SB í söng er sömu sögu að segja. Áhugi (já- kvætt viðhorf) SB á öllum greinum hefur einnig minnkað 1970 miðað við 1968 og á flestum grein- um 1969 miðað við 1968. Að öðru leyti fylgir við- horfamynstrið sömu meginlínu og í myndum 1A og 1B. Lestur bóka og sjónvarp njóta meðalvin- sælda, en „að hlusta á tónlist“ er frekar óvinsælt (1968); óvinsælla en söngur í skólanum. Á mynd 2B er viðhorf 2.-4. bekkja (TB og SB) til námsgreina sýnt yfir sama tveggja ára tímabil. Dvínandi jákvætt viðhorf nemenda í TB og SB yfir árin kemur enn greinilegar í ljós en á mynd 2A. (Tilgáta: nemendur eru búnir að vera lengur í skólanum; námsleiði hefur aukist). Viðhorf til átthagafræði árið 1969 er áberandi jákvæðari en til annarra „venjulegra" greina. (Tilgáta: átthaga- fræði er áhugavekjandi grein, „nálægt lífinu“ og því tilgangsrík í hugum nemenda). 1970 (í 4. bekk) bætast við greinarnar teikning (TEIK), náttúru- fræði (NÁTT) og kristinfræði (KRIST). „Við- horfaatkvæði“ nemenda skiptast nú á fleiri greinar og því fara heildar-vinsældir lækkandi. Burtséð frá þessu er áberandi að nýju greinarnar eru metnar í þessari röð: teikning, náttúrufræði, kristinfræði og virðast hlutfallslega háar vinsældir þessara greina vera á kostnað vinsælda hefðbundnu greinanna og jafnvel leikfimi og handmenntar. 2. bekkjar nem- endur hafa svipað jákvætt viðhorf til bókalesturs og sjónvarps (jákvæðara en 1. bekkjar nemendur á mynd 2A sama ár), en „að hlusta á tónlist“ er óvinsælt; töluvert óvinsælla en hjá 1. bekkjar nemendum sama ár. 3. eining: Samantekt þriggja skóla (nr. 2, 3 og 4) vfir tímabilið 1968-70 fyrir 2.-4. bekki ÍTR og SB) Mynd 3 sýnir paö sama og myndir 2A og 2B, nema hér eru TB þriggja skóla sarrieinaðir í eina línu og sama gildir um SB. Skýringarnar við myndir 2A og 2B eiga því einnig við mynd 3. Ef nokkuð er kemur „viðhorfamynstrið“ yfir tveggja ára tímabilið enn skýrar í ljós hér. 4. eining: Samanburður á SB í skólum 2-4 og SB í skóla 1 Á mynd 4 sést samanburður á SB í skólum 2-4 og í skóla 1, þeim skóla þar sem nemendur fengu MENNTAMÁL 20

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.