Vorið - 01.06.1949, Síða 32
70
VORIÐ
kveðju frá Pétri klæðskerans, við
liöfum ekki séð neinn óvin.“
Borgarbúarnir urðu nú æ efa-
Ijlandnari, og æ fleiri voru dæmdir
til dauða, svo að félögum Péturs og
Marteins fjölgaði.
Svo kom að því, að borgarbúar
gerðu uppreisn. Þeir sáu nú, að
það hlaut að vera satt, að Pétur og
Marteinn og allir hinir væru lif-
andi, og að engir óvinir væru
þarna ytra. Múgurinn þyrptist til
hallarinnar og krafðist þess, að
kóngurinn og hermenn hans
gengju í fararbroddi, svo kæmi hitt
fólkið á eftir, ef ekkert kæmi fyrir.
Kóngurinn var mésta gunga og
þótti þetta afleitt, en hann varð að
láta undan. Og nú lögðu kóngur-
inn og hermennirnir af stað, skjálf-
andi á beinunum. Við hinn endann
á göngunum stóðu Pétur, Marteinn
og allir hinir, því að fuglarnir
höfðu sagt þeiin, hvað gerzt hefði
inni í borginni. Þeir liöfðu aldrei
á ævinni skemmt sér betur, en þeg-
ar þeir sáu hermennina koma dauð-
hrædda og hikandi, og kónginn,
sem var ennþá hræddari.
Kóngurinn var svo feginn, þegar
hann sá Pétur, að hann faðmaði
hann að sér. Hraðboði var sendur
inn í borgina til að segja öllu fólk-
inu að koma út, og svo var haldin
veizla í grængresinu og skóglend-
inu í þrjá daga.
Borgin var rifin niður smámsam-
an, því að þar vildi enginn búa.
KURTEISI
Heima: Hjálpaðu foreldrum þín-
um fúslega. Vertu hlýlegur við
systkini þín. Gættu þess, að vera
þolinmóður, hógvær og umburð-
arlyndur. Varastu að láta þig
ganga fyrir öðrum. Gjörðu þitt
ýtrasta til að vera foreldrum þín-
um til gleði.
1 skólanum: Sýndu kennurum virð-
ingu. Hjálpaðu þeim með lipurð
og hlýðni. Fylgdu reglum skól-
ans. Vertu stundvís og skyldu-
rækinn. Skemmdu ekki borðin,
og haltu bókum þínum hreinuin
og snotrum. Vertu þokkalega
klæddur og hreinn. Leyfðu aldr-
ei, að neinum sé refsað í þinn
Svo mikið efni fékkst úr múrnum,
að það entist í hús handa hverju
heimili og auk þess stóra höll
handa kónginum. Kóngurinn réð
þannig fyrir heilu ríki nú, í stað-
inn fyrir einni borg áður. Pétur og
kóngsdóttirin fengu hálft kóngsrík-
ið, og það var nú ekki nema sann-
gjarnt. Loks varð Pétur kóngur yfir
öllu landi og hlaut nafnið Pétur
hinn liugprúði, og naut mikillar
aðdáunar, því að engum datt nokk-
urn tíma í hug, að nokkurn tíma
liefði neitt verið til, sem þyrfti að
óttast.
Ragnar Jóhannesson
þýddi.